Snilldin ein Sesselja G. Magnúsdóttir skrifar 1. september 2014 12:30 "Öll framsetning var afslöppuð og einlæg og alltaf var stutt í húmorinn,“ segir í dómnum. Fréttablaðið/Stefán
Dansverkið: A lecture on borderline musicals Hugmynd: Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson Flytjendur: Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson, kvennakórinn Hrynjandi og Heba Eir Kjeld Það er ástæða fyrir því að Ernu Ómarsdóttur hefur í gegnum árin verið hampað sem dansara og danshöfundi. Það er eitthvað snilldarlegt við allt sem hún gerir. Samstarf hennar og Valdimars Jóhannssonar hefur ekki síður yfir sér þessa snilld eins og sást í Kassanum á laugardaginn, lokadegi RDF. Þar fjölluðu þau um í töluðu máli, skýringardæmum og brotum úr þess konar verkum, sýningarformið sem þau kjósa að kalla borderline musiclas. Fyrir þá sem séð hafa margar af sýningunum þeirra var lítið nýtt að sjá en vegna nýs samhengis fékk allt nýja merkingu. Öll framsetning var afslöppuð og einlæg og alltaf var stutt í húmorinn. Tengslin við áhorfendur voru sterk, bæði var talað til þeirra og þeim sýnt efni sem þeir margir hverjir þekktu og gátu tengt við. Þessi nálgun virkaði og náðu þau áhorfendum algjörlega á sitt band eins og heyrðist á dynjandi lófataki í lok sýningarinnar. Það er ekki hægt að skilja við þetta verk án þess að minnast á tónlistina sem var ótrúlega flott. Söngurinn og hljóðsamsetningin, allt sem hafði með hljóðupplifunin að gera var ekki síst ástæða þess að verkið var einstaklega skemmtileg upplifun.Niðurstaða: Ótrúlegt verk byggt á áhugaverðum pælingum, ómældum hæfileikum, einlægni, og húmor
Gagnrýni Mest lesið Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Lífið Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Lífið Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira