Samtal á fundi Bergur Ebbi Benediktsson skrifar 5. júní 2014 07:00 Maður 1 Heyrðu. Nú erum við í þessum bransa að reka laxveiðiár. Það er soldið vont stigma í kringum þetta. Þegar fólk heyrir minnst á laxveiðiár hugsar það bara um ofdekraða karla í jakkafötum.Maður 2 Rétt hjá þér kallinn minn. Við þurfum að gera eitthvað í þessu. Breyta þessari ímynd. Við þurfum einhverja hugmynd ASAP.Maður 1 Ef við bara gætum fundið einhvern sem myndi þiggja ókeypis boð í laxveiðiána okkar. Það væri svo mikill heiður. Nú er ég bara að hugsa upphátt en draumurinn væri náttúrulega að finna einhvern verulega valdamikinn karlmann sem bæði væri erfingi stórkostlegra auðæfa sem urðu meðal annars til vegna umdeildrar einkavæðingar og væri líka giftur inn í stórauðuga fjölskyldu sem cash-aði út milljörðum með snjöllum viðskiptum rétt fyrir hrun ásamt því að vera formaður úrsérgengins stjórnmálaflokks sem stofnaður var utan um þjóðfélagslegt viðskiptamódel sem er ekki lengur til en er í dag meira að einbeita sér að hreinni sérhagsmunagæslu og hræðsluáróðri gagnvart fólki frá Mið-Austurlöndum.Maður 2 Góð hugmynd. Ég get varla ímyndað mér neitt sem almenningur elskar meira. En væri ekki enn betra að henda þessum bitlingi á einhvern Stjörnunagla úr Garðarbæ sem hefur instant valdatengingu við fjármál ríkisins og skuldsett stórfyrirtæki og er þar að auki erfðaprins einnar auðugustu og valdamestu fjölskyldu Íslands á 20. öld? Það er ekkert sem gerir fiskana jafn spaka og þegar það er alvöru kolkrabbi á bakkanum. Am I right?Maður 1 Jú. Það væri draumur. Bara ef svona menn væru til. Það væri of gott til að vera satt. Það er náttúrulega ekkert sem steinliggur jafn vel hjá almenningi og þegar valdamiklir og ríkir menn fá eitthvað ókeypis sem ekki er á færi almennings.Maður 2 Já. Það myndi bæta ímyndarvandann.Maður 1 Þetta var góður hugmyndafundur. Hvort viltu núna halda áfram að drekka rafgeymasýru eða að við ríðum apa og kveikjum í okkur?Maður 2 Apann. Alltaf apann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergur Ebbi Mest lesið Halldór 15.08.2026 Halldór Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann Skoðun Engar varnir gegn dýrasjúkdómum – Óafturkræft slys Halldór Runólfsson Skoðun
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun
Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir Skoðun