Lárus varði sjö víti en FH vann samt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2014 21:00 Lárus Helgi Ólafsson, markvörður HK. Vísir/Andri Marinó
Lárus Helgi Ólafsson, markvörður HK, átti magnaðan leik í Olís-deild karla í handbolta í kvöld en frábær frammistaða hans dugði þó ekki botnliði deildarinnar því FH vann þriggja marka sigur á HK í Digranesinu, 25-22. Lárus Helgi Ólafsson varði alls sjö víti FH-inga í leiknum og hélt sínum mönnum inn í leiknum en hann varði alls 22 skot FH-liðsins. Frábær frammistaða hans var ekki nóg og FH-ingar lönduðu báðum stigunum. FH-ingar fengu ófá víti í leiknum og Lárus gat ekki stoppað þau öll. Vítanýting FH í Digranesinu í kvöld var eitt mark í átta vítum en Lárus Helgi varði 88 prósent af vítunum sem hann reyndi við í leiknum. Þetta var langþráður sigur fyrir FH-liðið sem var aðeins búið að ná í eitt stig í síðustu þremur leikjum og vann síðast leik 17.nóvember. HK var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12, en FH vann upphafskafla seinni hálfleiksins 6-2 og komst tveimur mörkum yfir, 18-16. Andri Berg Haraldsson var öflugur í seinni hálfleiknum og skoraði mörg mikilvæg mörk þegar FH-liðið var að snúa við leiknum.HK - FH 22-25 (14-12)Mörk HK: Þorgrímur Smári Ólafsson 5, Leó Snær Pétursson 4, Andri Þór Helgason 4, Garðar Svansson 3, Guðni Már Kristinsson 3, Valdimar Sigurðsson 2, Aron Gauti Óskarsson 1.Mörk FH: Andri Berg Haraldsson 5, Daníel Matthíasson 5, Magnús Óli Magnússon 5, Ísak Rafnsson 4, Benedikt Reynir Kristinsson 2, Ragnar Jóhannsson 2, Hlynur Bjarnason 1, Andri Hrafn Hallsson 1
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Íslenski boltinn Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Pólland - Ísland | Seinni slagur við EM-gestgjafa Handbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Fleiri fréttir Pólland - Ísland | Seinni slagur við EM-gestgjafa FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Sjá meira
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn