Jól

Svona gerirðu graflax

Rikka skrifar
visir/Rikka
Í Eldhúsinu hans Eyþórs í gær sýndi meistarakokkurinn okkur hvernig á að grafa lax með einföldum hætti. Hér er að finna uppskriftina af honum sem og hinni einu sönnu graflaxsósu.



Graflax

1 laxaflak

250 gr púðursykur

250 gr gróft salt

½ msk dill

½ msk kórianderfræ

½ msk fennelfræ

½  msk dillfræ

½  msk sinnepsfræ 

½  staup af íslensku brennivíni eða vodka (má sleppa)

Blandið sykrinum og saltinu saman í skál. Stráið 1/3 af saltinu á bakka og leggið laxaflakið ofan á það. Hellið restinni af salt og sykurblöndunni yfir laxaflakið og nuddið vel inn í laxinn. Stráið þurrkryddunum jafnt yfir allt laxaflakið. Dreifið víninu yfir og setjið flakið inn á kæli og látið standa í 16 tíma. Snúið svo flakinu á hina hliðana og látið standa í aðra 16 tíma. Takið flakið af bakkanum og pakkið því vel inn.

Graflaxssósa

200 gr majónes

80 gr dijonsinnep

80 gr púðursykur

1 msk þurrkað dill

Setjið allt hráefni saman í hrærivélarskál og vinnið saman í ca. 4 mínútur eða þar til að sykurinn er allur búinn að leysast upp. Geymið í kæli yfir nótt. 



×