Löður tekur yfir rekstur þvottastöðva N1 Finnur Thorlacius skrifar 9. desember 2014 14:15 Snertilaus þvottastöð Löðurs.
Löður hefur tekið yfir rekstur bílaþvottastöðva N1. Löður rekur nú samtals þrettán bílaþvottastöðvar. Ellefu þeirra eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu, ein í Reykjanesbæ og ein á Akureyri. ,,Við erum afar ánægð og stolt með að fjölga þvottastöðvum Löðurs úr sex í þrettán og auka þannig til muna þjónustuna við okkar viðskiptavini. Okkur finnst sérlega ánægjulegt að vera nú einnig komin með stöðvar í Reykjanesbæ og á Akureyri. Við erum auk þess með í bígerð að opna Löður þvottastöðvar í Mosfellsbæ og Hafnarfirði,” segir Páll Mar Magnússon, framkvæmdastjóri Löðurs. Hann bætir við að fyrirtækið bíði eftir samþykki frá bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði vegna fyrirhugaðrar stöðvar þar í bæ en er bjartsýnn á að það fáist. Páll segir að undanfarna mánuði hafi verið unnið við að uppfæra þann búnað sem til staðar er á þessum stöðvum. ,,Sérfræðingar frá Spáni og Kanada komu m.a. til að aðstoða okkur að fullkomna ferlið og ná hámarks gæðum út úr vélunum sem og stytta biðtíma. Við bjóðum upp á fyrsta flokks þvottaefni, sápur og bónefni á öllum okkar þvottastöðvum. Við erum einnig með Rain-X á allan bílinn sem býður upp á fullkomna yfirborðs- og ryðvörn. Rain-X breytir miklu í vætutíð og vetrarveðrum, að ekki sé talað um vörnina gegn tæringu málma af völdum götusalts og brennisteinsvetnis í lofti sem mjög verður vart núna vegna gossins. Þar ræður aðeins vindáttin hvað ryðgar og hvað ekki. Þar fyrir utan er mun auðveldara að þrífa bíllinn og skafa af rúðum ef það er Rain-X á honum,” segir Páll og bætir við að allar stöðvar Löðurs séu nú opnar allan sólarhringinn.
Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Innlent