Ók niður hús Finnur Thorlacius skrifar 24. nóvember 2014 13:23
Kona ein í Kansas City í Bandaríkjunum afrekaði það nýlega að aka svo hressilega á hús að það varð rústir einar, eins og sjá má hér. Talið er að bíll hennar, Nissan Armada sem hún hafði reyndar stolið, hafi verið á um 130 km hraða er hún ók á húsið. Á eftir henni voru nokkrir lögreglubílar að reyna að fá hana til að stöðva bílinn og skýrir það hraðann. Í húsinu, sem er múrsteinshlaðið hús frá 1920, var geymd tylft af fornbílum frá fimmta, sjöttu og sjöunda áratug síðustu aldar, en þeir eru nú ónýtir. Sem betur fer biðu þeir þar uppgerðar, svo tjónið er ekki eins mikið, en tilfinnanlegt samt. Þótt ótrúlegt megi virðast meiddist konan lítið við áreksturinn, en eftir spítalavist er hætt við því að fangelsi sé hennar næstu viðkomustaður. Enginn var í húsinu svo segja má að furðu vel hafi farið þrátt fyrir allar þessar afleiðingar. Sjá má konuna aka á bygginguna og hana hrynja að stórum hluta í kjölfarið í meðfylgjandi myndskeiði.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent