Vír einnig strengdur í Bretlandi Finnur Thorlacius skrifar 14. október 2014 10:44 Bærinn Totton í Bretlandi.
Stutt er síðan slys varð á hjólreiðamanni á göngubrú við Elliðaárnar þar sem strengdur hafði verið vír yfir brúna í þeim tilgangi að meiða vegfaranda. Samskonar atvik átti sér stað í vikunni í Bretlandi þar sem þykkur vír hafði verið strengdur milli tveggja ljósastaura í bænum Totton, er virðist í sama tilgangi. Sem betur fer uppgötvaðist vírinn áður en nokkur hjólaði á hann og var það gangandi vegfarandi sem tilkynnti lögreglu um hann. Á síðustu 10 árum eru þekkt meira en tugur slíkra tilfella víða um heim sem valdið hafa slysum en í mörgum tilfellum hefur verknaðurinn uppgötvast áður en slys hlaust af. Ekki var þó Greg Burkett þó svo heppinn fyrir skömmu er hann var að hjóla í Ástralíu, en sauma þurfti 23 spor í háls hans eftir samskonar vírstrengingu. Mildi þykir að hann hélt lífi. Enn verr fór fyrir mótorhjólamanni árið 2007 er hann afhöfðaðist fyrir framan vini hans á fáförnum malarvegi á Ítalíu, en þeir óku á um 100 km hraða. Sauma þurfti 23 spor í háls Greg Burkett í Ástralíu eftir að hann hjólaði á vír.
Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent