Leikjavísir

EVE Online kemur út á frönsku

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/CCP
EVE Online, tölvuleikur CPP, kemur út á frönsku í dag. Upphaflega kom leikurinn út á ensku en nú, ellefu árum seinna, hafa fimm tungumál bæst við. Leikurinn er einnig fáanlegur á rússenesku, þýsku, kínversku og japönsku.

Í tilkynningu frá CCP segir að þar að auki muni fyrirtækið sinna frönskumælandi markaðssvæðum heimsins með margskonar upplýsingagjöf og þjónustu á frönsku.

CCP stendur fyrir kynningarsamkomu fyrir blaðamenn í París á fimmtudaginn. Þar verður sett upp sýning á myndefni og listaverkum úr heimi leiksins og video-verkið Day in the Universe verður sýnt fyrir utan New York í fyrsta sinn. Verkið hefur verið til sýningar á Museum og Modern Art í New York.

„Við erum mjög ánægð að færa frönskumælandi spilurum tölvuleikja þann einstaka leikjaheim sem EVE Online hefur upp á að bjóða,“ segir Andi Nordgren, framleiðslustjóri EVO Online, í tilkynningunni.

„Í dag erum við með öflugt samfélag EVE Online spilara í Frakklandi og það verður athyglisvert að sjá hvernig það bregst við með þessari viðbót við leikinn og auknum fjölda frönskumælandi spilara.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.