"Laxlaus eftir 9 daga í lax í sumar, hættur þessu! " Karl Lúðvíksson skrifar 13. ágúst 2014 17:34
Það er nokkuð mikið rætt um ástandið í ánum á milli veiðimanna í dag og það eru margir sem hafa töluverðar áhyggjur veiðileyfasölu á komandi ári. Veiðileyfasala var erfið eftir sumarið 2012 og þrátt fyrir metveiði í mörgum ánum 2013 var erfitt að selja veiðileyfi í margar árnar það ár. Nú upplifa veiðimenn annað lélegt ar og þá kemur upp umræða um verðlagningu veiðileyfa á ám sem klárlega eru ekki nálægt því að skila sínu. Það sama var upp á teningnum eftir sumarið 2012 og veiðileyfasalar urðu þess klárlega varir að mikill samdráttur var í sölu laxveiðileyfa til innlendra veiðimanna og eftirspurn erlendra veiðimanna minnkaði líka. Það voru fáar árnar sem voru seldar yfir 80% í sumar og líklegt að þær verði fleiri á næsta ári. Um ástæður og kenningar á lélegri laxgengd í sumar verður ekki rætt í þessari grein heldur veltum við áfram nokkrum orðum sem veiðimenn, margir hverjir sem hafa stundað sömu árnar um árabil, hafa látið falla á samfélagsmiðlum. Nöfn þeirra sem ummælin eru höfð eftir verða ekki birt. "Er hættur i laxveiði og er bara í silung. Breytist kannski" "Hef dregið mjög mikið úr veiði, hættur í lax og fer í stöku silungsá en mest í vötn bara orðið, þökk sé Veiðikortinu" "Ég kemst í einn til tvo laxveiðitúra af ódýrari gerðinni á hverju ári en er hættur að fara í árnar sem ég var vanur að fara í því nú þarf að sleppa öllu. Ætli ég skelli mér ekki bara í ódýra haustveiði í Ytri Rangá, þar má ala vega koma með heim í soðið fyrir sanngjarnt verð" "Ég var vanur að eyða 200-300 þúsund í laxveiðileyfi á hverju sumri en er bara hættur að fara í lax. Verðin hækka bara og veiðin er yfirleitt eins eða minni!" "Er einhver bissness í dag að taka á á leigu fyrir morðfé og svo veiðist ekkert í henni?" "Laxlaus eftir 9 daga í lax í sumar, hættur þessu! " Þetta eru nokkur ummæli sem voru tekin af samfélagsmiðlum og er aðeins brot af yfirlýsingum innlendra veiðimanna á ástandinu í flestum ánum. Þrátt fyrir þrýsting frá veiðimönnum um verðlækkanir er ólíklegt að af þeim verði því samningar liggja fyrir til lengri tíma um árnar. Þegar árnar fara síðan á annað borð í útboð eru yfirleitt nokkur tilboð á borðinu og á meðan boðið er í árnar með því fyrirkomulagi sem nú er eru litlar líkur á verðlækkunum. Undantekning á þessu virðist vera aðkoma nýrra leigutaka á Ytri Rangá en verðin þar lækkuðu um allt að 25% milli ára.
Stangveiði Mest lesið Aukning í netaveiði 2010 Veiði Nokkrir risar úr Affallinu Veiði Hafrannsóknarstofnun hvetur veiðimenn til að sleppa laxi Veiði Langá full af laxi en takan getur verið treg Veiði Arnarvatnsheiðin kemur vel undan vetri Veiði Flott opnun í Víðidalsá Veiði Rjúpnalausir veiðimenn óska eftir rjúpum Veiði Verðlækkun í Ásgarði í Soginu Veiði Frábær veiði í Laxá í Dölum Veiði Bleikjan loksins mætt í þjóðgarðinn Veiði