Tíska og hönnun

Conchita Wurst sló í gegn á tískupöllunum

Conchita Wurst tók sig vel út á tískupöllunum með Jean Paul Gaultier.
Conchita Wurst tók sig vel út á tískupöllunum með Jean Paul Gaultier. Vísir/Getty
Eurovisison sigurvegarinn Conchita Wurst fékk þann heiður að loka Haute Couture-sýningu Jean Paul Gaultier í morgun. 

Austurríska söngkonan gekk inn tískupallinn við lófaklapp áhorfenda í svörtum brúðarkjól með gullbryddingum. Wurst virtist ánægð með viðtökurnar en hönnuðurinn sjálfur, Gaultier, kom svo tl að deila sviðinu með henni. 

Tískupekingar vilja meina að hönnuðurinn hafi nú fundið nýtt andlit fyrir tískuhúsið, Jean Paul Gaultier.

Wurst hefur verið á ferð á flugi síðan hún vann Eurovision í vor með laginu Rise Like a Phoenix. Meðal annars var hún aðalnúmerið í Gay Pride í London, kom fram í Cannes-kvikmyndahátíðinni og nú hefur tískuheimurinn tekið henni opnum örmum. 

Fallegur brúðarkjóll í svörtu.
Austurríska söngkonan skemmti sér vel á tískupallinum með Jean Paul Gaultier.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.