QuizUp og Coca-Cola í samstarfi á HM Randver Kári Randversson skrifar 24. júní 2014 14:54 HM-spurningaleikur Coca-Cola í QuizUp. Mynd/Plain Vanilla
Coca-Cola á nú í samstarfi við íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla um að bjóða notendum QuizUp upp á sérstaka spurningarflokka tengda heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Plain Vanilla. Í QuizUp má nú finna meira en 18 þúsund HM-spurningar í 40 flokkum í boði Coke. Þar á meðal eru sérstakir spurningaflokkar sem tengjast HM-sögu hvers þátttökulands í keppninni í Brasilíu. Einnig er að finna í leiknum gagnlegar staðreyndir og ýmsar upplýsingar um fótbolta til að auðvelda nýjum áhorfendum að skilja íþróttina. „Heimsmeistarakeppnin er einstakur kynningarvettvangur að mati Coca-Cola og þeim fannst QuizUp vera frábær leið fyrir knattspyrnuaðdáendur til að rifja upp sögu mótsins. Við höfum sagt að við viljum frekar vinna með þekktum vörumerkjum að því að búa til skemmtilegt efni fyrir notendur QuizUp heldur en að troða inn truflandi auglýsingum. Coca-Cola og Google eru fyrstu fyrirtækin sem við höfum unnið með á þennan hátt, en það eru fleiri slík verkefni í pípunum,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Plain Vanilla fer í samstarf við stórfyrirtæki um spurningaflokka í QuizUp. Fyrir skömmu styrkti tæknirisinn Google spurningaflokk þar sem notendur fengu að sjá myndir sem er að finna í Google Earth forritinu og áttu þeir að giska á hvar í heiminum myndirnar voru teknar. QuizUp er nú hægt að spila á fimm tungumálum; ensku, frönsku, spænsku, þýsku og portúgölsku. Búist er við að spurningar á kínversku, tyrknesku og rússnesku bætist við áður en langt um líður. Fyrstu vikuna sem QuizUp var fáanlegt á þýsku spiluðu notendur leikinn í alls 175 þúsund klukkustundir. Að meðaltali hafa notendur QuizUp spilað sex milljónir leikja á hverjum degi síðan leikurinn kom út í nóvember og eyða um 30 mínútum í leiknum á degi hverjum. Yfir 22 milljónir manna í 230 löndum hafa náð í QuizUp en í honum er að finna meira en 220 þúsund spurningar í rúmlega 400 flokkum.
Leikjavísir Mest lesið Þetta eru keppendur Ungfrú Ísland Teen 2025 Lífið Hegðun Benedikts kom upp um bónorðið Lífið Sonur Rögnu og Árna kominn með nafn Lífið „Ég trúði því aldrei að ég yrði þessi gaur“ Lífið Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Lífið Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Bíó og sjónvarp Fagurkeri selur miðbæjarperlu Lífið Skúli hannaði hof fyrir Grímu Lífið Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Lífið „Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Lífið Fleiri fréttir Mafia: The Old Country - Fínasta afþreying, þó þunn sé Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Sjá meira