Olís opnar metanafgreiðslu í Álfheimum Finnur Thorlacius skrifar 13. júní 2014 10:45 Metanafgreiðslustöð Olís í Mjódd.
Olís hefur opnað nýja og fullkomna metanafgreiðslu á þjónustustöð félagsins í Álfheimum í Reykjavík. Metan er íslenskt eldsneyti, mun umhverfisvænna en annað eldsneyti og talsvert ódýrara. Metanið er framleitt í Álfsnesi og unnið úr hauggasi sem verður til úr lífrænum úrgangi sem þar er urðaður. Við vinnsluna verður til vistvænt íslenskt eldsneyti. ,,Olís opnaði fyrstu metanafgreiðslu sína á þjónustustöð félagsins í Mjódd síðastliðið sumar og við finnum fyrir mikilli ánægju með hana meðal fjölmargra notenda metanbifreiða. Með opnun metaafgreiðslu í Álfheimum aukum við til muna þjónustu okkar við notendur metanbifreiða sem hefur farið fjölgandi á Íslandi á liðnum árum. Það er ánægjulegt að geta boðið íslenskt, vistvænt eldsneyti. Það er þjóðhagslega hagkvæmt, sparar gjaldeyri, skapar störf og er liður í sjálfbærni þjóðarinnar,“ segir Jón Ó. Halldórsson, framkvæmdastjóri smásölu- og eldsneytissviðs Olís. Metanafgreiðsla verður einnig opnuð á Akureyri. Um áramótin tóku gildi ný lög um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi. Þau kveða á um skyldu olíufélaganna til að tryggja að ákveðið hlutfall eldsneytis til samgangna sé af endurnýjanlegum uppruna. Olís hafði þá þegar uppfyllt þessi skilyrði. Olís kynnti vorið 2013 fyrst íslenskra olíufyrirtækja díselolíu blandaða með VLO, eða vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu, sem er hreinna og umhverfisvænna díseleldsneyti en þekkst hefur. ,,Öll þessi grænu skref eru í samræmi við umhverfisstefnu félagsins,“ segir Jón ennfremur.
Mest lesið Tíu ung börn voru orðin verkjuð og hjólbeinótt vegna beinkramar Innlent Jóhanna ætlar ekki aftur fram Innlent Tortryggnir í garð tolla Trumps Erlent Heiðra minningu Sigurðar Kristófers með Neyðarkallinum í ár Innlent Fólk hafi varann á þegar PIN-númer eru slegin inn Innlent Játaði hópnauðgun og vildi komast í frí til heimalandsins Innlent Situr í súpunni eftir að hafa selt bankaþjófi jeppa Innlent Rósa Guðbjarts hætt í bæjarstjórn Innlent „Mér finnst þetta bara klaufaskapur“ Innlent Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Erlent