Ljótustu bílar knattspyrnumanna Finnur Thorlacius skrifar 16. júní 2014 13:53 Bentley bíll Ballotelli í felulitum hefur valdið mörgum velgju.
Nú þegar HM í knattspyrnu fer fram er alveg fyrirtak að skemmta sér líka yfir því hvernig sumir þessara forríku fótboltamanna fara með alla peningana sem þeir fá fyrir sparkið. Títt er að þeir kaupi sér rándýra bíla og sumir ganga ennþá lengra og láta sprauta þá sérstaklega eða breyta þeim á annan hátt. Hér sjást dæmi um þá bíla sem bílavefurinn Autoblog telur þá allra ljótustu. Nú er bara að hvers og eins að dæma um hver þeirra nær titlinum „ljótasti bíll knattspyrnumanns“, en margir eru til kallaðir. Þessi bíll, einnig af Bentley gerð er í eigu Stephen Ireland. Hann er vel "pimpaður upp". Varnartröllið William Gallas á þennan krómaða Mercedes Benz. Ekki beint í felulitunum þessi. Þríhjólið hans Shaun Wright Phillips stækkar ekki mikið þennan smávaxna leikmann. Djibril Cisse á þennan breytta Chrysler 300 SRT með "airbrush"-málað húddið. Cadillac Escalade bíllinn hans El Hadji Diouf er gulllitur og nær ósýnilegur.....eða þannig. Jermaine Pennant á þennan krómaða Aston Martin. Ósmekklegheitin taka engan enda þegar Stephen Ireland á í hlut. Hann á einnig þennan Range Rover. Hér sést þriðji bíllinn í eigu Stephen Ireland, Audi R8 sem skreyttur hefur verið örlítið.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður