Tossinn hannaði Aston Martin One-77 Finnur Thorlacius skrifar 15. maí 2014 12:30 Aston Martin One-77 er hannaður af Michael Lehti.
Margir þeir sem ná árangri í lífinu áttu ekki sjö dagana sæla í æsku og hér er ágætt dæmi um það. Michael Lehti frá Bretlandi gekk í Benson Elementary School og sætti þar einelti bekkjafélaga sinna. Honum gekk ekki vel í skóla og uppnefndu bekkjafélagar hans hann „lead head“. Ástandið á æskuheimili Michael var heldur ekki gott en faðir hans var óforbetranlegur alkohólisti og fátækt ríkti á heimili hans. Michael til mikillar gæfu var þó það að hann var með Karlene Berry sem kennara, en hún leitaði að hæfileikum í hverjum nemanda og hafði trú á Michael, meiri trú en hann hafði á sjálfum sér, að minnsta kosti þá. Micheal féll í flestum greinum í 8. bekk en gekk samt vel í raungreinum. Karlene sýndi honum þó alltaf stuðning, hvatti hann til dáða og sagði honum að einbeita sér að því sem hann væri góður í. Nú í dag er Michael virtur bílahönnuður og margverðlaunaður fyrir störf sín, auk þess sem hann á nokkur einkaleyfi fyrir uppgötvanir sínar. Michael hannaði meðal annars einn af dýrustu bílum heims, Aston Martin One-77 og Porsche RUF CTR3, sem einnig er ógnardýr bíll. Michael gleymdi aldrei þessum frábæra kennara sínum og þeim stuðningi sem hann naut frá henni í æsku og ákvað því um daginn að láta hana vita af því hversu mikinn þátt hún á í velgengni hans. Hann heimsótti gamla kennarann sinn, 32 árum síðar, og var með í farteskinu hjartnæmt bréf til hennar, risastór blómvönd og peningagjöf. Að vonum varð Karlene hissa, en í leið afar glöð yfir því að hennar viðhorf skildu verða honum hvatning til að láta drauma sína rætast. Það sannarlega tókst bílahönnuðinum Michael Lahti. Hann lét reyndar þau orð falla til Karlene að er hann ók á glæsibíl sínum inní gamla bæinn sinn að hitta hana, hefði hann kannski átt að vera með risastórt skilti á bílnum sínum sem á stæði „lead head“ og sjá upplitið á gömlu bekkjarfélögum sínum. Hann hefur þó tekið út meiri þroska á lífsleið sinni en það og lét því ekki af því verða, þó freistandi væri. Porsche RUF CTR3 var einnig hannaður af Michael Lahti.
Mest lesið Dómari birtir nafn sæðisgjafa til að vara við honum og öðrum Erlent Sérkennilegt að vera útilokuð vegna mála sem komi borginni ekki við Innlent „Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk“ Innlent Gullafólk, þingmenn og kanónur klöppuðu upp Guðrúnu Innlent Úrskurðarnefnd vísar máli Búseta frá Innlent Krókur Dana á móti bragði sem vilja kaupa Kaliforníu af Trump Erlent Útilokar aðild Úkraínu að NATO og krefur Evrópu um meira Erlent Hefur lagt fram frumvarp og ætlar að eyða óvissunni Innlent Ráðherra braut ekki lög Innlent „Kryddpíur“ í formlegt samtal Innlent