Bílar

Mikið fyrir lítið

Finnur Thorlacius skrifar
Ford Fiesta ST
Ford Fiesta ST GVA
Reynsluakstur – Ford Fiesta ST



Sú ágæta þróun hefur orðið hérlendis að aftur fást nú sportútgáfur bíla, en þeir hurfu að mestu úr úrvali umboðanna við hrun. Einn þessara bíla er Ford Fiesta ST sem mikið hefur verið mærður erlendis og kemur það undirrituðum ekki á óvart eftir að hafa prófað hann. Aðrir bílar í þessum flokki sem bjóðast nú eru til dæmis Volkswagen Golf GTI, Kia Cee´d Pro GT, Renault Clio RS, Peugeot 208 GTI og Skoda Octavia VRS. Allt mjög skemmtilegir bílar og kraftaútgáfur af mörgum af vinsælustu fólksbílum heims. Það er mikið fagnaðarefni að þessir bílar séu aftur í boði og vonandi finna þeir sem flesta eigendur hérlendis á næstunni.

Ódýrastur „hot hatch“-bílanna

Ford Fiesta ST er 180 hestöfl og þau koma frá lítilli 1,6 lítra vél með forþjöppu. Þetta afl er nægt til að koma honum í 100 km hraða á 6,9 sekúndum. Hann er því ámóta snöggur bíll og hinir ofantöldu sportbílarnir þrátt fyrir að vera vopnaður færri hestöflum. Þar sem hann er minni og léttari bíll en hinir er hann enginn eftirbátur hinna í snerpu. Það jákvæða hinsvegar við Ford Fiesta ST er að hann er talsvert ódýrari en hinir. Hann kostar aðeins 4.090.000 kr, en hinir eru allir á verði um og yfir 5 milljónir. Renault Clio RS er á 4.990.000, Kia Cee´d GT á 5.490.000, Golf GTI á 5.590.000 og Skoda Octavia VRS á 5.680.000 krónur. Þarna ber talsvert í milli og því má segja að Ford Fiesta ST hafi nokkurt forskot í flokknum um hylli kaupenda, en hafa verður í huga að allir hinna bílanna eru þónokkuð stærri bílar.

Mikil akstursgeta

Það fyrsta sem ökumaður finnur fyrir við akstur Ford Fiesta ST er hversu harður bíllinn er, alveg glerharður. Það á svo sem ekki að koma á óvart þegar um sportara er að ræða en hægt er að fullyrða hann sé harðari við akstur en allir hinna keppinautanna. Þessi harða fjöðrun hans eykur líka á aksturseiginleika hans og hann ræður ótrúlega við beygjurnar fyrir vikið. Hrikalega gaman er að henda honum í þær og veggripið er undarlega mikið. Fyrir vikið er hann trúrri ætlunarverki sínu að vera hreinræktaður sportbíll sem fórnar nokkuð þægindunum fyrir akstureiginleikana. Þessu þurfa ökumenn hans bæði að sætta sig við og í leiðinni njóta til fullnustu.

Nýtur sín á háum snúningi

Þessi bíll beinlínis hvetur ökumann til að aka sér rösklega og er það góður eiginleiki. Í leiðinni hvetur hann einnig ökumann til að láta hann snúast hratt í hverjum gír og hann nýtur sín best á háum snúningi. Að því leitinu minnir hann á Toyota GT86/Subaru BRZ. Beinskiptingin í Ford Fiesta ST hæfir karakter bílsins vel og skiptihnúðurinn leikur í hendi. Bremsurnar eru einnig góðar, enda diskar bæði að framan og aftan, en Ford Fiesta ST er fyrsti Fiesta bílinn sem er svo búinn. Undarlega mikið tog er í þessari litlu 1,6 lítra vél, svo mikið að það veldur undrun, vel gert hjá Ford. Þrátt fyrir að Ford Fiesta ST skorti 20 hestöfl í samanburði við Renault Clio, sem einnig þykir mjög skemmtilegur sportbíll, þá hefur Fiestan Clio-bílinn á braut, þökk sé frábærum aksturseiginleikum hans.



Hreinrætaður sportbíll

Venjulegur Ford Fiesta er fallegur bíll, en þessi útgáfa hans er enn fallegri og talvert kraftalegri. ST-útgáfa hans er þriggja hurða og þannig verður hann sportlegri bíll og ekki skemma 17 tommu felgurnar. Að innan tekur ekki verra við, flott sportsæti og lagleg innrétting. Gírhnúður og pedalar úr áli gefa honum það sportlega yfirbragð sem honum sæmir. Bíllinn er ekki hlaðinn tæknibúnaði, en ef svo hefði verið hefði hann svikist um ætlaunarverkið og verið þyngri bíll sem komið hefði niður á akstureiginleikum hans. Hann er ætlaður fyrir fólk sem gerir meiri kröfur til akstursgetu en þæginda. Þannig á það líka að vera. Ástæða er til að minnast á eitt sem ekki gladdi ökumann, en það var mikið veghljóð og virðist einangrun bílsins aðeins ábótavant. Líklega er hér kominn bíll þar sem kaupendur fá einna mest fyrir peninginn hvað aksturgetu varðar. Hann er á frábæru verði og því ætti hann að geta fundið marga glaða kaupendur, en víst er að enginn annar bíll á 4 milljónir fæst hérlendis með slíka akstursgetu.

Kostir: Aksturseiginleikar, útlit, verð

Ókostir: Hastur, veghljóð

1,6 l. bensínvél, 180 hestöfl

Framhjóladrif

Eyðsla: 4,9 l./100 km í bl. akstri

Mengun: 138 g/km CO2

Hröðun: 6,9 sek.

Hámarkshraði: 220 km/klst

Verð: 4.090.000 kr.

Umboð: Brimborg

Frábær framsæti eru í bílnum.GVA
Stór vindskeiða að aftan og tvö pústop, enda þarf þessi bíll að anda mikið.GVA





×