Viðskipti erlent

Stærstu kaup í sögu Apple

Bjarki Ármannsson skrifar
Dr. Dre verður ríkasti maður rappheimsins ef kaupin ganga í gegn.
Dr. Dre verður ríkasti maður rappheimsins ef kaupin ganga í gegn. Vísir/AFP
Allt lítur út fyrir að brátt verði gengið frá kaupum tölvurisans Apple á fyrirtækinu Beat Electronics, sem stofnað var af rapparanum Dr. Dre og framleiðir vinsæl heyrnartól. Kaupin eru talin nema rúmum 360 milljörðum króna og yrðu þannig þau stærstu í sögu Apple.

Guardian er meðal þeirra sem fjallar um þetta mál. Talið er að kaupin verði tilkynnt á næstunni, jafnvel fljótlega eftir helgi. Beats var sett á laggirnar árið 2008 og nýlega kynnti fyrirtækið tónlistardreifikerfi að hætti Spotify. Talið er að það kerfi hafi heillað Apple, en iTunes-forritið þeirra hefur minnkað í vinsældum undanfarið. 

Dr. Dre, sem er frekar þekktur fyrir tónlistarsmíð sína en viðskiptavit, yrði með þessum kaupum ríkasti maðurinn í rappbransanum. Auðæfi hans yrðu metin á um 90 milljarða króna.

Þess má geta að leikarinn Tyrone Gibson, félagi Dr. Dre, birti á Instagram-síðu sinni í gærnótt myndband sem gaf sterklega til kynna að kaupin væru við það að ganga í gegn en því hefur síðar verið eytt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×