Jólaköku gotterí fyrir alla fjölskylduna Marín Manda skrifar 20. desember 2013 11:45 Jólatrén er girnileg að narta í.
Á gotteri.is er að finna einfalda og litríka uppskrift af Rice Krispies jólatrjám og stjörnum fyrir gotterísdaga. Hjá Gotterí og Gersemum er einnig 3 fyrir 2 tilboð á gjafabréfum á köku námskeið fram til 24. desember. Jólatré 3 msk smjör 1 poki sykurupúðar (um 40 stk) 6 bollar Rice Krispies Grænn matarlitur Skraut Hvítt súkkulaði (um 100-150gr) Kökuskraut að eigin vali/nammi Íspinnaprik Annað sem þarf Bökunarpappír Matarolía/sprey Pikarkökumót (jólatré) Bræðið smjör í stórum potti við lágan hita. Bætið sykurpúðunum útí og hrærið þar til þeir hafa bráðnað alveg saman við smjörið. Setjið nokkra dropa af grænum matarlit í blönduna og hrærið vel, bætið við eftir því hversu dökk þið viljið hafa trén. Bætið Rice Krispies útí, einum bolla í einu og hrærið vel. Setjið bökunarpappír á plötu/bakka og hellið blöndunni þar á. Spreyið/berið matarolíu á sleif og dreifið úr blöndunni á bökunarpappírnum. Notið þykktina á piparkökumótinu ykkar til á áætla þykktina (betra að hafa aðeins þykkari en þynnri til að koma prikinu í) Þegar þykktin er um það bil sú sama er gott að leggja bökunarpappír ofaná blönduna og pressa létt með stórri bók til að trén muni verða sem sléttust þegar stungið er út. Kælið, berið matarolíu á piparkökumótið (svo það klístrist ekki við) og stingið síðan út eins mörg jólatré og þið getið og stingið pinnanum svo í sé þess óskað. Bræðið hvítt súkkulaði (má líka vera flórsykursblanda/icing), klippið lítið gat á zip-lock poka (eða notið brúsa með litlu gati/kökuskreytingarpoka m.stút) og skreytið að vild. Munið að setja kökuskrautið á hvert tré jafnóðum því súkklaðið harðnar fljótt. Skraut Hvítt súkkulaði (um 100-150gr) Annað sem þarf Bökunarpappír Matarolía/sprey Pikarkökumót (stjörnur) Bræðið smjörlíki, súkkulaði og sýróp í stórum potti við lágan hita. Þegar allt hefur bráðnað saman er gott að hækka hitann og leyfa blöndunni að „sjóða“ í um 1-2 mínútur því þá festist hún betur saman þegar hún kólnar. Bætið Rice Krispies útí blönduna, um einum bolla í einu og alls ekki of mikið því þá festist blandan ver saman. Notið sömu aðferð við að móta þykktina og við gerð jólatrjánna. Kælið og skerið út í stjörnur og notist við sömu tækni við að skreyta og gert er við jólatrén nema hér er ekki sett kökuskraut (nema þið óskið þess að sjálfsögðu). Nánar um uppskriftirnar á gotteri.is
Eftirréttir Föndur Jólamatur Uppskriftir Mest lesið Theodór Elmar og Pattra í sundur Lífið Þurfa að staðfesta á fimm ára fresti að dóttir þeirra sé enn með Downs Lífið Simmi Vill í meðferð Lífið Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Bíó og sjónvarp Íslensk mæðgin slá í gegn í herferð Zöru Tíska og hönnun „Mér líður eins og plottið í bókinni sé að raungerast“ Menning Sjóðheitar skvísur í feldsfíling Tíska og hönnun „Mér finnst þessi vegferð okkar ótrúlega glæsileg“ Lífið Kristján Guðmundsson látinn Lífið Sögufrægt hús falt fyrir tvö hundruð milljónir Lífið Fleiri fréttir Mongólsk kjötsúpa Ása: „Þetta er bara alveg eins og íslensk kjötsúpa“ Mac n' cheese frá grunni „Foodporn í boði Adams“ Stökkir ostabitar í pistasíuhjúp Djúsí kjúklingasalat á naanbrauði Létt og ljúffengt eplasalat Tiramisu-brownie að hætti Höllu Hryllilega girnilegar hrekkjavökukræsingar Dúnmjúk skinkuhorn með æðislegri fyllingu Elegant eftirréttur sem hlýjar um hjartarætur Bragðgott quesadilla á einni plötu Smjörsteikt bleikja, smjörkennt hvítvín og „alkahólíseraður Texasbúi“ „Táknmynd ítalskrar matargerðar“ Silkimjúk espresso-kaka fyrir helgina „Forréttur sem ég býð öllum upp á“ Sjá meira