Leður púffar með fallegum boðskap Marín Manda skrifar 21. desember 2013 11:00 Lína Móey og Ágústa Dagmar.
Lína Móey og Ágústa Dagmar reka netverslunina Silvan.is og selja leðurpúffa. Þetta átti bara að vera gæluverkefni en vörurnar frá Marokkó eru svo fallegar að ég gat ekki annað en slegið til,“ segir Lína Móey sem nú flytur inn leðurpúffa í mörgum skemmtilegum litum ásamt vinkonu sinni, Ágústu Dagmar.Fallegt barnaherbergi með púffum.„Mig langaði að opna verslun og var með ákveðna framtíðarsýn svo ég lagðist í rannsóknarvinnu á netinu og fann þessa fallegu púffa.“ Púffarnir eru handunnir og hverjum púffa fylgir ævintýralegur texti með mismunandi boðskap, eftir textahöfundinn Sölva Fannar. „Fólk man eftir þessum púffum frá því í gamla daga og þá má vel vera að þeir finnist í gömlum geymslum hjá fjölskyldunni en við vildum vera með meiri fjölbreytni hvað varðar liti og útsaum á púffunum.“ Hægt er að panta púffana hjá netversluninni silvan.is og fá senda heim, innpakkaða fyrir jólin. Púffarnir koma ófylltir og segist Lína Móey fylla sína eigin púffa með gömlum rúmfötum, handklæðum, fötum og jafnvel dagblöðum.
Mest lesið „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ Lífið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Tíska og hönnun Krakkatían: Óvæntur gestur, söngleikur og dalmatíuhundar Lífið Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Bíó og sjónvarp „Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fleiri fréttir Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Steldu meðgöngustílnum af Tönju Ýr Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Halla í peysufötum langömmu sinnar Sjá meira