Fótbolti

Ferð til Brasilíu í sumar er ekki lengur draumur

Kolbeinn Tumi Daðason í Zagreb skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen vinnur skallaeinvígi á æfingu íslenska landsliðsins í Zagreb í gær.
Eiður Smári Guðjohnsen vinnur skallaeinvígi á æfingu íslenska landsliðsins í Zagreb í gær. MYnd/Vilhelm
„Ég er gífurlega stoltur af því að vera fyrirliði þessa liðs,“ segir Aron Einar Gunnarsson. Miðjumaðurinn segir hlutverk sitt sérstaklega skemmtilegt þessa dagana þegar svona vel gangi.

„Okkur hefur tekist að breyta hugarfari Íslendinga gagnvart landsliðinu. Við spilum skemmtilegan fótbolta og það sást í stúkunni á Laugardalsvelli á föstudaginn.“

Leikmenn íslenska liðsins börðust sem sært ljón í umræddum leik. Niðurstaðan varð markalaust jafntefli sem voru fyrsta flokks úrslit í ljósi þess að Íslendingar spiluðu manni færri í síðari hálfleik.

„Auðvitað erum við minni spámenn í þessum leikjum en við erum þó ekki svo fjarri Króötunum,“ segir landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck. „Ég hlakka til leiksins og tel okkur eiga góðan möguleika.“

Landsliðsþjálfarinn 65 ára hefur ítrekað lýst yfir ánægju sinni með leikmenn íslenska landsliðsins. Þeir hvorki kvarti né kveini heldur taki mikla ábyrgð, séu ófeimnir og flottir fulltrúar þjóðar sinnar. Fyrirliðinn Aron Einar er ekki síður stoltur af strákunum sem hann mun leiða út á Maksimir-leikvanginn í Zagreb í kvöld.

„Ég er rosalega stoltur af strákunum, hvernig þetta hefur gengið og hvernig þeir hafa meðhöndlað stöðuna,“ segir Aron Einar hvergi banginn fyrir leikinn stóra í kvöld. Menn séu hættir að láta sig dreyma því nú sé þetta í þeirra höndum. Ferð til Brasilíu í sumar sé góður möguleiki.

„Við verðum bara að hafa trú á því. Það er það eina sem skiptir máli. Hafi leikmenn ekki trú á verkefninu er voðinn vís. Leikurinn verður erfiður og strákarnir vita það vel.“

Lagerbäck var brosmildur í spjalli við blaðamann í gær og óskandi að hið sama verði uppi á teningnum að leik loknum í kvöld.

„Maður veit aldrei hvað gerist í fótbolta. Ég vona það að sjálfsögðu en það kemur í ljós að leik loknum. Yfirspili Króatar okkur og sigri þá brosi ég varla,“ segir Lagerbäck. Þá þurfi Ísland að sætta sig við að vera lakara lið en Króatía.

„Ég vona hins vegar að við verðum báðir brosandi annað kvöld.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×