Tíska og hönnun

Glaumgosar og glæsimenni sýna föt

Nýja línan er samstarf Gunnars Hilmarssonar, Kormáks & Skjaldar og starfsmanna.
Nýja línan er samstarf Gunnars Hilmarssonar, Kormáks & Skjaldar og starfsmanna. MYND/Baldur Kristjánsson
Hin árlega herrafatasýning Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar verður haldin í Þjóðleikhúskjallaranum miðvikudaginn 20. nóvember.

„Herrafatasýningin er eins og flestir þekkja ekki hefðbundin tískusýning heldur koma saman glaumgosar og önnur glæsimenni og sýna það helsta sem verslunin hefur upp á að bjóða frá vönduðum vörumerkjum utan úr heimi,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason, aðstoðarverslunarstjóri Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar.

Ný herrafatalína verslunarinnar verður kynnt en hún er samstarf Gunnars Hilmarssonar, Kormáks & Skjaldar og starfsmanna verslunarinnar.

„Línan í ár er sú stærsta og fjölbreyttasta hingað til og má í henni finna þriggja hluta tvídjakkaföt, tvíhneppt jakkaföt og staka jakka. Einnig er fjölbreytt úrval af skyrtum og yfirhöfnum ásamt slaufum fyrir unga sem aldna, sem handgerðar eru af klæðskera verslunarinnar,“ segir Ragnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.