Gagnrýni

Strákar í sjóræningjaleik

Freyr Bjarnason skrifar
Tölvuhakkarinn Gottfrid tekst á við erfitt dómsmál í myndinni.
Tölvuhakkarinn Gottfrid tekst á við erfitt dómsmál í myndinni.
Bíó

The Pirate Bay: Away From the Keyboard

Leikstjóri: Simon Klose

RIFF-hátíðin



Í þessari heimildarmynd er skyggnst á bak við tjöldin í umdeildu dómsmáli gegn stofnendum sænsku deilisíðunnar Pirate Bay vegna höfundarréttarbrota.

Þegar myndin var gerð var Pirate Bay tífalt umsvifameiri deilisíða en þegar Napster var hvað vinsælust. Hakkarinn Gottfrid, talsmaðurinn Peter og tölvunjörðurinn Fredrik voru hundeltir af stóru kvikmyndaverunum í Hollywood sem töldu á sér brotið. Þeir þrjóskuðust við og neituðu að loka síðunni.

Myndin er sögð frá sjónarhóli sjóræningjastrákanna þó svo að leikstjórinn geri lítið aukalega til að réttlæta þeirra málstað. Myndavélin er meira eins og fluga á vegg og er áhugavert að fylgjast með skipulagsleysi „glæpamannanna“ og hversu litlir hugsjónamenn þeir virðast vera.

Myndin heldur athyglinni ágætlega. Vissulega hefði verið gaman að heyra einhvern áhrifamann frá Hollywood rakka drengina niður eða heyra þá sjálfa vera brjálaða út í „gráðugu“ kvikmyndaverin. En þetta er einfaldlega ekki þannig mynd, heldur rólegheitaferðalag í gegnum sérstætt dómsmál.

Niðurstaða: Fluga á vegg í formi myndavélar fylgist með þrjóskum strákum í sjóræningjaleik.

Hér fyrir neðan er hægt að horfa á myndina en aðstandendur hennar gerðu hana aðgengilega í heild sinni á YouTube. Þeir benda á heimasíðu myndarinnar, tpbafk.tv, fyrir þá sem vilja fræðast nánar um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.