Gerðu fimm ára samning við helsta hönnunarfyrirtæki heims Sara McMahon skrifar 28. september 2013 07:00 Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðu dagatal fyrir nokkrum árum. Wrong for Hay selur nú dagatalið undir sínu nafni. Fréttablaðið/Valli „
Þetta kom þannig til að hönnuðurinn Sebastian Wrong kom hingað til lands í tengslum við Design Match, sem er á vegum Hönnunarmiðstöðvar og Hönnunarmars. Design Match er ætlað að koma á tengslum á milli íslenskra vöruhönnuða og erlendra aðila og þannig kynntumst við Wrong. Hann hóf nýverið samstarf við danska hönnunarfyrirtækið Hay og hannar systurlínu undir nafninu Wrong for Hay, dagatalið okkar verður selt undir því nafni,“ segir Snæfríð Þorsteins um samstarf sitt og Hildigunnar Gunnarsdóttur við hönnunarrisann Hay. Snæfríð og Hildigunnur hönnuðu umrætt dagatal fyrir um fimm árum en samningurinn við Hay er nýr af nálinni. „Það eru mörg ár síðan dagatalið leit fyrst dagsins ljós. Við höfum gefið það út árlega í nokkur ár og breytt útlitinu í hvert sinn okkur til gamans. Dagatalið er „rífidagatal“, maður rífur dagana af og sér árið tætast upp,“ útskýrir Snæfríð. Spurð nánar út í samninginn við Wrong for Hay segir Snæfríð að fyrirtækið hafi tryggt sér einkarétt á dagatölunum næstu fimm árin en þær halda réttinum á Íslandi. „Við fáum svo prósentu af hverri sölu. Hay hefur verið á þvílíkri siglingu undanfarið og eru með öfluga dreifingu á vörum sínum. Þetta er því ansi þétt dreifikerfi sem við dettum inn í.“ Snæfríð er vöruhönnuður að mennt og Hildigunnur er grafískur hönnuður. Þær hafa starfað lengi saman og vinna einkum við grafíska hönnun. Aðspurð segir Snæfríð að þær stöllur mundu gjarnan vilja halda samstarfinu við Hay áfram, standi það til boða. „Þetta er það fyrirtæki sem við hefðum helst viljað vinna með. Við sjáum svo hvernig þetta samstarf fer,“ segi hún að lokum.Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðu dagatal sem fæst nú hjá systurfyrirtæki Hay, Wrong for Hay. Fréttablaðið/ValliHay á hraðri siglingu Hönnunarfyrirtækið Hay var stofnað árið 2002 og frumsýndi sína fyrstu línu á hönnunarmessunni IMM í Köln árið 2003. Markmið Hay var að skapa fallega hönnun í anda sjötta áratugarins en með nútímalegum blæ. Fyrirtækið rekur þrjár verslanir í Danmörku og eina í Noregi auk þess sem vörur þeirra fást í verslunum víða um heim, þar á meðal hér á landi. Hönnun þeirra má gjarnan finna á síðum hönnunartímarita og er stóllinn J77 á meðal þeirra þekktustu vara.
HönnunarMars Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Harry Styles setti heimsmet Lífið Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Það allra besta að gráta í gufu Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira