Tíska og hönnun

Fatalína Rihönnu sýnir mikið hold

Á tískuviku Rihanna á tískuvikunni í London síðastliðinn febrúar.
Getty/Nordicphotos
Á tískuviku Rihanna á tískuvikunni í London síðastliðinn febrúar. Getty/Nordicphotos
Poppstjarnan Rihanna og breska tískukeðjan River Island kynna til leiks aðra fatalínu söngstjörnunnar.

Að þessu sinni var Rihanna innblásin af hermannamynstrum í bland við íþróttalegan götufatnað. Fatalínan er ögrandi og hentar Því kannski ekki öllum. Rihanna þorir að ganga um í magabolum og stuttbuxum, en það eru ekki allir sem gera það, segir talsmaður breska Vogue.

Óvíst er hvort Rihanna komi á tískuvikuna í London sem verður haldin 13.-17 september til þess að kynna línuna eins og hún gerði fyrr á árinu. Fatalínan kemur í búðir River Island 12. september næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.