Á skilið að fá meiri athygli Trausti Júlíusson skrifar 18. janúar 2013 06:00 Jón Þór. Sérðu mig í lit?
Tónlist. Jón Þór. Sérðu mig í lit? Eigin útgáfa. Sérðu mig í lit? er fyrsta sólóplata Jóns Þórs Ólafssonar sem áður var meðlimur í hljómsveitunum Isidor, Lada Sport og Dynamo Fog. Jón semur sjálfur öll lög plötunnar og alla texta nema einn. Textarnir eru á íslensku, en þetta er í fyrsta sinn sem Jón Þór syngur á móðurmálinu. Hann bætist þar með í nokkuð stóran hóp íslenskra tónlistarmanna sem hafa valið íslensku fram yfir ensku að undanförnu (Mugison, Lay Low, Dimma…). Tónlistin á Sérðu mig í lit? er hressilegt og melódískt indírokk. Hún minnir svolítið á tónlistina sem Lada Sport spilaði en er heldur léttari og poppaðri. Rafmagnsgítarinn er í aðalhlutverki í mörgum laganna, en í öðrum eru kassagítarar og hljómborð leiðandi hljóðfæri. Jón Þór er ágætis söngvari og textarnir hans eru margir fínir. Það er staðreynd að maður hlustar nánar á textana hjá íslenskum tónlistarmönnum sem syngja á íslensku en ensku. Jón Þór á greinilega ekki heldur í neinum vandræðum með að semja lög. Margar lagasmíðanna á plötunni eru stórgóðar. Mér finnst þessi plata svolítið Blur-leg. Ekki að Jón Þór sé að afrita einhver lög með Blur heldur er þetta áþekk blanda af poppi og rokki og hjá Damon Albarn og félögum. Samt er líka einhver séríslensk stemning í lögum eins og Ljáðu mér eyra og Lengra en sólin sér. Í því fyrrnefnda er kórsöngur sem kemur mjög vel út. Hvort tveggja mjög fín lög. Og þau eru fleiri. Titillagið er t.d. frábært og lögin Tímavél og Uppvakningar. Sérðu mig í lit? kom út seint á síðasta ári en flaug frekar lágt. Ef það er hægt að tala um ókost við sterkt tónlistarár eins og var í fyrra, þá er það kannski helst að margar fínar plötur ná ekki í gegn og fá ekki þá athygli sem þær eiga skilið. Sérðu mig í lit? er dæmi um þannig plötu. Niðurstaða: Fyrrverandi söngvari Lada Sport með fína frumsmíð.
Gagnrýni Mest lesið „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Tónlist Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Fleiri fréttir Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Er Stalín listgagnrýnandi í Hörpu núna? Wardruna í vanda – þegar dulúðin náði ekki flugi Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Sjá meira