Mazda með eyðslugrennsta bílaflotann Finnur Thorlacius skrifar 18. desember 2013 10:45 Mazda3 er einn hinna eyðslugrönnu bíla Mazda og með Skyactive vél.
Toyota er stærsti framleiðandi tvinnbíla og Nissan á stóran skerf í Plug-In tvinnbílum heimsins með hinum vinsæla Nissan Leaf, en það er samt Mazda sem skartar eyðslugrennsta flota bíla allra bílaframleiðenda. Af 11 stærstu bílaframleiðendum sem selja bíla í Bandaríkjunum stendur Mazda hæst á stalli sem sá framleiðandi sem framleiðir eyðslugrennstu bílana og þá sem menga minnst. Í öðru sæti var Honda, Volkswagen í því þriðja og Subaru í fjórða. Það eru því þrír japanskir bílaframleiðendur og einn þýskur sem fylla fjögur efstu sætin og því ekki nema vona að bílar þeirra seljist vel vestanhafs. Neðst á listanum er Chrysler/Fiat, rétt fyrir neðan General Motors, en báðir þeir framleiðendur eru bandarískir og virðast þeir seint ætla að læra að framleiða eyðslugranna og smáa bíla. Chrysler/Fiat tókst engu að síður að minnka mest eyðslu bíla sinna og ef það heldur áfram má búast við að fyrirtækið vermi kannski ekki neðsta sætið að ári. Það merkilega við árangur Mazda er að fyrirtækið hefur sniðgengið tvinnbíla og Plug-In tvinnbíla en treyst á framleiðslu hinna sparneytnu Skyactive véla í bíla sína, með þessum líka fína árangri. Mazda stefnir að sölu 1,7 milljón bíla árið 2016 og verða þá Skyactive vélar í 80% þeirra.
Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Svalt þokuloft ekki langt undan Innlent Reyna að ráða niðurlögum sinuelds við Apavatn Innlent Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Innlent Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Erlent