Fótbolti

Alexis Sánchez með bæði mörkin í sigri Síle á Wembley

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alexis Sánchez fagnar í kvöld.
Alexis Sánchez fagnar í kvöld. Mynd/NordicPhotos/Getty
Alexis Sánchez, leikmaður Barcelona, skoraði bæði mörkin þegar Síle vann 2-0 sigur á Englandi í vináttulandsleik á Wembley í kvöld. Báðar þjóðir hafa tryggt sér sæti á HM í Brasilíu.

Sílemenn sýndi í kvöld að þeir verða sýnd veiði en ekki gefin á HM næsta sumar en liðið vann sanngjarnan sigur í London í kvöld. Roy Hodgson. þjálfari Englendinga, gaf mörgum mönnum tækifæri en sú tilraunastarfsemi gekk ekki vel.

Englendingar unnu sinn riðil en Sílemenn urðu í þriðja sæti í keppni Suður-Ameríkuþjóðanna á eftir Argentínu og Kólumbíu.

Alexis Sánchez hefur verið að spila vel með Barcelona-liðinu á þessu tímabili og hann kom Síle í 1-0 eftir skyndisókn strax á sjöundu mínútu leiksins.

Sánchez bætti síðan við öðru marki á 90. mínútu eftir að Gary Cahill tapaði boltanum klaufalega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×