Fótbolti

HM-draumurinn lifir - myndaveisla frá Laugardalnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tíu íslenskum landsliðsmönnum tókst að halda gríðarsterku króatísku landsliði í skefjum í 40 mínútur í fyrri umspilsleiknum um laust sæti á HM í Brasilíu sem fram fór í Laugardalnum í kvöld.

Markalaust jafntefli heldur draumnum lifandi um þátttöku á HM í Brasilíu næsta sumar en þjóðirnar mætast aftur í Króatíu á þriðjudagskvöldið.

Það var magnað að vera í Laugardalnum í kvöld þar sem Íslendingar stóðu sig frábærlega, bæði inn á vellinum sem og í stúkunni.

Vilhelm Gunnarsson og Daníel Rúnarsson, ljósmyndarar Vísis og Fréttablaðsins, voru á Laugardalsvellinum í kvöld og náðu þessum skemmtilegum myndum sem sjá má í flettiglugganum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×