Fótbolti

Boðað til mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Þórir Hákonarson er framkvæmdastjóri KSÍ.
Þórir Hákonarson er framkvæmdastjóri KSÍ. mynd/pjetur
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir utan höfuðstöðvar Knattspyrnusambands ísland (KSÍ) á morgun klukkan 17.

„Við erum á móti spillingu KSÍ í miðasölu fyrir Króatíuleikinn,“ segir í lýsingu Facebook-síðu sem stofnuð hefur verið í tilefni mótmælanna. Nú þegar hafa um 2.500 manns skráð sig á síðuna, en mikillar óánægju gætir vegna sölufyrirkomulagsins, en miðarnir fóru í sölu klukkan 4 á aðfaranótt þriðjudags og seldust miðarnir upp áður en flestir stigu úr rekkju.

Þess er krafist að KSÍ axli ábyrgð og segir á event-síðu mótmælanna að mikilvægt sé að reiðin beinist gegn KSÍ en ekki að leikmönnum landsliðsins.

„Strákarnir eiga allan okkar stuðning skilið og munum við að sjálfsögðu standa við bakið á þeim, burt séð frá því hvort það verður á vellinum eða heima í stofu. Það er hins vegar ekki ásættanlegt að Íslendingar, með sitt ótrúlega skammtímaminni, gleymi því sem átti sér stað fyrir rúmum tveimur sólarhringum. Forsvarsmenn KSÍ vita hversu fljótir Íslendingar eru að gleyma og bíða þess vegna af sér skömmina í staðinn fyrir að bæta upp fyrir mistökin eða taka almennilega ábyrgð á þeim,“ segir á síðunni, en forsvarsmönnum KSÍ verður afhent yfirlýsing og áskorun frá hópnum.


Tengdar fréttir

Reiði í samfélaginu með miðasölu KSÍ

Mikil gremja og reiði er í samfélaginu vegna miðasölu KSÍ fyrir leik Íslands og Króatíu og að hún skyldi hefjast þegar allt venjulegt fólk er sofandi.

Yfirlýsing frá KSÍ: 5000 miðar voru í boði fyrir almenning

Þórir Hákonarson, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að íslensk fyrirtæki hafi sóst eftir mörg þúsund miðum á landsleik Íslands og Króatíu í umspili um laust sæti á HM í Brasilíu. Hann biðst afsökunar á því hvernig staðið var að miðasölunni.

Króatískir fjölmiðlar fjalla um miðasölu KSÍ

Króatískir fjölmiðlar fjalla í dag um miðasölu KSÍ á landsleik Íslands og Króata í umspili um sæti á heimsmeistaramótið í Brasilíu sem fram fer á næsta ári.

Gagnrýna KSÍ með nætursölu á sjónvörpum

Max raftæki verður með afar veglegt tilboð á Samsung sjónvarpstæki í nótt. Á milli klukkan 04:00 til 07:00 í nótt verður 50% afsláttur á 32" Samsung LED sjónvarpi.

Ákváðu fyrirkomulag sölu seint um kvöld

Framkvæmd miðasölu á landsleik Íslands og Króatíu vakti reiði margra í gær. Ákvörðunin um að setja miðana í sölu klukkan fjögur um nóttina var tekin kvöldið áður. Fólk virðist ekki hafa hamstrað miðana, segir framkvæmdastjóri KSÍ.

KSÍ afturkallar miðakaup

"Ég hef fengið ábendingar um að einhverjir hafi keypt óeðlilega mikið af miðum og séu að selja þá á öðrum miðlum,“ segir Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri Knattspyrnusambands Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×