Matur

Uppáhalds hráfæðiskaka Helgu Gabríelu

myndir/helga Gabríela

Við kynnum til leiks Helgu Gabríelu sem heldur úti einstöku matarbloggi www.helga-gabriela.com en þar má finna dásamlegar uppskriftir sem vert er að prófa. Hér birtum við fyrstu uppskriftina hennar Helgu en það er uppáhalds hráfæðiskakan hennar.

Þetta er án efa uppáhálds hráfæðiskakan mín. Ég er búin að vera prufa mig áfram og er komin með hina fullkomnu uppskrift af súkkulaðiköku með vanillu kaffikremi og saltri karamellu.  

Allt hráefnið í þessari uppskrift er lífrænt og heilsusamlegt. Dökkt kakó er td. fullt af andoxunarefnum og steinefnum. 

Botn: 

1 bolli hnetur

1 bolli mjúkar döðlur

2 mtsk lífrænt kakó

1/8 himalaya salt

1/4 tsk kanill 

Setjið allt saman í matvinnsluvél og blandið vel. Þjappið deginu í eitt form eða fallegan kökudisk og geymið í kæli þar til kremið er tilbúið. 

Vanillu og kaffikrem:

2 bollar kasjúhnetur

3 matskeiðar kakósmjör

1/4 bolli maple sýróp, eða dökkt agave/hunang

1/8 tsk himalaya salt

1/3 sterkt lífrænt mokka kaffi

fræ úr einni vanillustöng



Til að útbúa kremið, blandið öllum hráefnunum saman í matvinnsluvél eða blandara og setjið kremið ofan á botninn og inn í frysti meðan við út búum karamelluna.

Sölt karamella 

1/2 bolli dökkt agave

2 mtsk möndlusmjör

1/4 tsk himalaya salt 



Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt.   

Tilvalið er að bræða smá lífrænt kakósmjör, bæta útí það dökku kakói og agave til að skreyta kökuna ásamt, karmellunni, goji eða ferskum berjum.

Geymið í kæli 1-2 klst, eða þar stil hún er orðin stíf. Síðan er gott að leyfa henni að standa í nokkrar mínutur áður en skorið er í hana, því þá verður hún mjúk og kremuð. 

Njótið!

Bloggið hennar Helgu Gabríelu:  www.helga-gabriela.com 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.