Tíska og hönnun

Eru báðir miklir slaufumenn

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Guðjón Ólafsson og Pétur Haukur Loftsson hanna og sauma þverslaufur.
Guðjón Ólafsson og Pétur Haukur Loftsson hanna og sauma þverslaufur. Fréttablaðið/Arnþór Birkisson
„Við erum báðir miklir slaufumenn. Okkur fannst vanta flottar, ódýrar slaufur og ákváðum bara að fara að framleiða þær sjálfir,“ segir Pétur Haukur Loftsson, sem ásamt félaga sínum Guðjóni Ólafssyni hóf að hanna og sauma slaufur sem þeir svo selja á Facebook-síðu sinni.

Hönnunina kalla þeir NEK og segir Pétur Haukur að viðtökurnar hafi verið góðar. „Við byrjuðum á þessu fyrir rúmum tveimur mánuðum og höfum verið að prófa okkur áfram með að finna mót og efni. Þetta er bara svona skemmtilegt verkefni og við köllum okkur ekki hönnuði eða neitt slíkt, en þetta hefur gengið vonum framar og við náum varla að sinna eftirspurn.“



Upphaflega ætluðu piltarnir einungis að framleiða einlitar, stílhreinar slaufur en þegar þeir sáu úrvalið af skrautlegum efnum í efnavöruverslunum stóðust þeir ekki mátið.

„Það kom mér á óvart að skrautlegu slaufurnar seljast mest,“ viðurkennir Pétur Haukur.

Hver slaufa kostar 3.000 krónur og bjóða félagarnir upp á fría heimsendingu á fimmtudögum.

Hægt er að panta slaufu í gegnum Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.