Viðskipti erlent

Ríkasta fólk heimsins verður enn ríkara

Bill Gates stofnandi Microsoft er aftur kominn á toppinn sem ríkasti maður heimsins.
Bill Gates stofnandi Microsoft er aftur kominn á toppinn sem ríkasti maður heimsins.

Í nýrri skýrslu sem unnin var af Boston Consulting Group  um auðæfi heimsins kemur fram að ríkasta fólkið í heiminum er orðið enn ríkara en áður. Eitt prósent af íbúum jarðarinnar ræður nú yfir 39% af auðæfum heimsins.

Í skýrslunni kemur fram að í heildina nema auðæfi íbúa heimsins um 135 billjónum dollara og jukust þau um 7,8% í fyrra miðað við árið á undan.  Af þessari upphæð eru rúmlega 52 billjónir dollara í eigu ríkasta eins prósents jarðarbúa.

Fjöldi milljónamæringa, mælt í dollurum, jókst um 10% á síðasta ári og þar með eru 13,8 milljónir manna sem eru milljónamæringar.

Í skýrslunni kemur einnig fram að almennt munu auðæfi heimsins vaxa um 4,8% á ári næstu fimm árin. Hvað milljónamæringana varðar munu auðæfi þeirra aukast tvöfalt á við fyrrgreint prósentuhlutfall. Þeir sem eiga yfir 100 milljónir dollara eiga í vændum að þeirra auðæfi vaxi um 9,2% á fyrrgreindu tímabili.

Þeir sem teljast til 100 milljóna dollara klúbbsins eiga samanlagt 5,5% af auðæfum heimsins. Þetta hlutfall fer í 6,8% árið 2017.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×