Tíska og hönnun

Hönnunarteymi kært fyrir skattsvik

Stefano Gabbana og Domenico Dolce neita allri sök fyrir rétti í Mílanó. Hér má sjá þá á góðri stundu fyrr í mánuðinum á Met ballinu ásamt söngkonunni Katy Perry.
Stefano Gabbana og Domenico Dolce neita allri sök fyrir rétti í Mílanó. Hér má sjá þá á góðri stundu fyrr í mánuðinum á Met ballinu ásamt söngkonunni Katy Perry. Mynd/Afp

Hönnunarteymið Dolce og Gabbana eru þessa dagana fyrir rétti í Mílanó.

Þeir Stefano Gabbana og Domenico Dolce eru ákærðir fyrir skattsvik og krefst saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi yfir hönnuðunum frægu.

Mun tískuhúsið hafa sleppt því að gefa upp um 15 milljarða íslenskra króna til skatts síðan árið 2004 en þeir neita allri sök.

Dómur í málinu er væntanlegur síðar í sumar.

Dolce og Gabbana gáfu út sína fyrstu kvenfatalínu árið 1985 og síðan þá byggt upp tískuveldi sem er eftirsótt út um allan heim.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.