Eru innréttaðir eins og sannir lúxusbílar.
Hver hefur ekki oft óskað sér í þungri umferð þar sem ekkert gengur að komast áfram að setja bara upp sjúkrabílaljós og kveikja á sírenunni og láta alla aðra víkja fyrir sér. Sem betur fer er þetta ekki hægt víða, en þetta er greinilega hægt í Rússlandi, hvar annarsstaðar.
Þar leigja ofurríkir Rússar sér bíla sem gerðir hafa verið eins í útliti og venjulegir sjúkrabílar. Vegna þessa hafa lögreglumenn verið beðnir að rannsaka sjúkrabíla á götum Moskvu með reglulegum hætti til að stöðva þessa starfsemi. Þessir fals-sjúkrabílar eru alls ekki ódýrir í leigu og kosta 200 dollar á hvern klukkutíma, eða um 25.000 krónur.
Það þarf þó ekki að sitja í sjúkrabörum eða á bekkjum í bílunum því þeir hafa verið útbúnir eins og sannir lúxusbílar svo leigjendur þeirra geti borðað kavíarinn sinn og drukkið kampavín með í eðlilegu umhverfi.
Bílar