Bílar

Framleiða 2.700 Audi bíla á dag

Finnur Thorlacius skrifar
Unnið er allan sólarhringinn á þrískiptum vöktum

Fáar fréttir fara af Audi en góðar fréttir. Fyrirtækið rakar til sín verðlaunum og bílar þeirra seljast vel í öllum heimshlutum. Ennfremur var hagnaður Volkswagen á síðast ári að stórum hluta upprunninn frá Audi. Höfuðstöðvar Audi eru í Ingolstadt, ekki langt frá München í Bæjaralandi. Blaðamaður bílablaðs Fréttablaðsins var þar á ferðinni fyrir stuttu og fékk langa og ítarlega leiðsögn um verksmiðju Audi í Ingolstadt, sem og um glæsilegt bílasafn Audi. Í Ingolstadt eru framleiddir hvorki meira né minna en 2.700 bílar á dag af 35.356 starfsmönnum í verksmiðju sem er á stærð við Mónakó. Unnið er allan sólarhringinn til að að anna mikilli eftirspurn eftir bílum þeirra, nema á sunnudögum. Þessi framleiðsluhraði þýðir að nýr bíll verður til á 30 sekúndna fresti. Það er kannski ekkert skrítið í ljósi þess að verksmiðja þessi er næst stærsta bílaverksmiðja Evrópu, á eftir verksmiðju Volkswagen í höfuðstöðvum þeirra í Wolfsburg. Audi er mjög eftirsóttur vinnustaður og því nýtur fyrirtækið þess að geta valið góða starfsmenn úr stórum hópi þeirra sem þar vilja vinna.

Hver bíll tekur 32 klukkutíma í framleiðslu


Það er sannarlega með ólíkindum að koma inná svo stóran vinnustað og enn áhugaverðara að sjá hvernig þeir vinna á meðal þeirra ótalmörgu vélmenna sem þar eru. Vitað var að bílar Audi eru vandaðir mjög en eftir heimsóknina sannfærðist blaðamaður um af hverju. Kemur þar margt til, svo sem vönduð efnisnotkun, ótrúlegt gæðaeftirlit, rannsóknarstarf og notkun allra nýjustu tækni. Í Ingolstadt eru
framleiddir bílarnir A3, A4, A5, TT og Q5. Tekur það að jafnaði 32 klukkustundir frá því að smíði bíls hefst og þangað til hann rúllar fullsmíðaður útúr verksmiðjunni. Það gefur því augaleið að margir bílar eru í smíði í einu og þeir mjakast hægt og rólega eftir færiböndunum og færast milli starfsmanna sem hver og einn hefur sitt sérhæfða hlutverk. Starfsmenn skipta þó oft um hlutverk til að einhæfni gæti minna.

Frábært starfsumhverfi

Flestir ímynda sér að vinna við að setja saman bíla sé eins og úr Chaplin mynd þar sem fólk vinnur eins og vélmenni, er hætt að hugsa og vinnur ósjálfrátt. Svo er ekki. Starfsfólk fer úr einu í annað og reynir stöðugt að finna út hvernig gera má hlutina betur og er umbunað fyrir vel heppnaðar umbætur. Starfsumhverfi þeirra er eins gott og hugsast getur og enginn þeirra er gert það að vinna við óheilbrigðar aðstæður og bílunum er snúið og lyft eftir því hvernig hver starfsmaður er í bestri líkamsstöðu til að sinna hlutverki sínu. Hreinleiki og snyrtimennska er í hávegum höfð og hægt að fullyrða að flestar skrifstofur eru mun skítugri en gólfin þar. Loftræsting virðist einnig vera með allra besta móti og fannst aldrei óþægileg lykt af neinum sterkum efnum. Þó örlítið í þeim sal þar sem bílarnir eru soðnir saman af vélmennum, þar fannst suðulykt sem margir kannast við af bílaverkstæðum eða í skipasmíði. Búast má við að verksmiðjan í Ingolstadt þróist nokkuð og stækki á næstu árum því til ársins 2015 er áætlað að fjárfesta í henni fyrir 1 milljarð Evra á ári, eða 126 milljarða!
Það rýmar kannski ágætlega við áætlanir Audi að fjölga mjög bílgerðum sínum á næstu árum til að þóknast kaupendum. Á teikniborðinu eru a.m.k. Q2, Q4 og Q6 jepplingar.






×