Tíska og hönnun

Michael Kors vinsælastur

Samkvæmt rannsóknum Digital Luxury Group er Michael Kors vinsælasti fatahönnuðurinn á internetinu í dag. Kors gerði sér lítið fyrir og sló hönnuðum eins og Marc Jacobs, Veru Wang og Ralph Lauren ref fyrir rass. Rannsóknin var gerð út frá upplýsingum leitarvéla á netinu á tímabilinu janúar - júní 2012. Hún var gerð í 35 löndum, þar á meðal í Kína, Bandaríkjunum, Rússlandi, Frakklandi, Brasilíu og Japan. „Leitarvélar endurspegla raunverulegan áhuga viðskiptavina mun betur en samskiptamiðlarnir", segir talsmaður Digital Luxury Group í viðtali við Womens Wear Daily. Rannsóknin sýndi að það væru aðallega leðurvörur Kors sem fólk er að leitast eftir.

Auglýsingaherferð Michael Kors fyrir vor - og sumar 2013.
Michael Kors.
Leðurvörur Kors eru vinsælar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.