Fáskrúð og Norðurá II í brennidepli 28. febrúar 2013 22:17 Veitt við Króksfoss í Norðurá II.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur verður með opið hús annað kvöld. Þar verða árnar Fáskrúð og Norðurá II kynntar og ýmislegt fleira skemmtilegt gert. Dagskrá opnu húsanna er í höndum skemmtinefndar Stangaveiðifélagsins. Dagskráin hefst klukkan 20 (föstudaginn 1. mars) og er þetta helst:Jóhannes Viljálmsson mun kynna Fáskrúð og leiða gesti í gegnum leyndardóma árinnar.Þeir Júlíus Bjarnason, eða Núlli Bjarna eins og hann vill láta kalla sig, og Elvar Friðriksson munu lýsa veiðistöðum við Norðurá II.Stjáni Ben kynnir Rise fluguveiði kvikmyndahátíðina sem verður haldin 7. mars í Bíó Paradís.Veiðiflugugetraunin mun reyna á kunnáttu veiðimanna og spurning hvort að Garden Fly slæðist með.Happahylurinn verður einkar fengsæll að venju og verður í boði Ellingsen og Ölgerðarinnar að þessu sinni.Nýr og skemmtilegur liður verður kynntur til leiks. Eins og flestir ættu nú orðið að vita þá eru opnu húsin nú haldin í sal Lögreglufélagsins að Brautarholti 30. Ekki fara í fýluferð á Háaleitisbrautina eða í Elliðaárdalinn.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Stundum vill hann bara Frigga Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Metopnun í Selá Veiði Mikil hækkun í Skjálfandafljóti Veiði