Aftur til fortíðar með 415 hestafla Chevrolet SS Finnur Thorlacius skrifar 19. febrúar 2013 17:45 Chevrolet SS með krafta í kögglum
Hefur ekki selt afturhjóladrifinn fjögurra dyra fjölskyldubíl með mjög öflugri vél síðan 1996. Chevrolet hefur ekki selt afturhjóladrifinn fjögurra dyra fjölskyldubíl með mjög öflugri vél síðan 1996, eða frá því að Chevrolet Impala SS var á sölulista fyrirtækisins. Úr því verður bætt á þessu ári með tilkomu Chevrolet SS sem verður með V8 vél undir húddinu og 415 hestöfl. Tekur sá bíll sprettinn í hundraðið á 5 sekúndum. Það sem er líklega merkilegast við þennan bíl er að hann er hannaður og smíðaður af Holden-armi Chevrolet í Ástralíu. Chevrolet SS kemur í sölu á síðasta ársfjórðungi ársins. Chevrolet framleiðir að sjálfsögðu Camaro og Corvette bílana, en þeir eru báðir tveggja hurða sportbílar og ekki hentugir sem fjölskyldubílar. General Motors, eigandi Chevrolet, bauð reyndar uppá öflugan fjölskyldubíl í formi Pontiac G8 bílsins fram til ársins 2010, eða þar til Pontiac merkið var lagt niður. Chevrolet áætlar ekki að SS bíllinn verði mikill magnsölubíll, hann muni seljast í 8-10.000 eintökum á ári. Hann á að keppa við Dodge Charger SRT og Chrysler 300 SRT á markaðnum fyrir kraftabíla sem ekki falla í lúxubílaflokk. GM ætlar að setja 13 nýja bíla á markað á þessu ári og býst við 7% söluaukningu frá árinu í fyrra.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent