Tíska og hönnun

Óvenjulegur sviðsklæðnaður

Rapparinn Kayne West verður seint þekktur fyrir að fara troðnar slóðir hvað varðar klæðaburð. Hann kom fram í þessari hvítu múnderingu á tónleikum í Abu Dhabi á dögunum og vakti mikla athygli. West myndi líklegast seint láta sjá sig í fötum sem ekki væru frá heimsklassa hönnuðum, en gríman sem hann var með er frá Maison Martin Margiela og jakkinn frá Givenchy.

Kayne West kom svona fram á tónleikum í Abu Dhabi.
Kanye.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.