Fiat íhugar lágverðsmerki 4. febrúar 2013 17:30 Dacia Duster hefur selst vel og Dacia merkið malar gull fyrir Nissan
Toyota, Volkswagen og fleiri á þeim buxunum. Margir bílaframleiðendur horfa með öfundaraugum til Dacia-merkis Nissan. Dacia bílar eru framleiddir í Rúmeníu og eru mjög ódýrir bílar sem minna er lagt í en Nissan bíla, en seljast nú eins og heitar lummur. Það á ekki bara við í austurhluta Evrópu heldur er salan einnig góð í Frakklandi og Þýskalandi og víðar í vesturhluta álfunnar. Toyota á merkið Daihatsu og ætlar að nota það til að markaðssetja ódýrari gerðir bíla. Volkswagen er einnig að íhuga að setja á legg ódýrara bílamerki sem selja myndi bíla á verðinu fimm til tíu þúsund Evrur og verður ákvörðun tekin um það á þessu ári. Nú hefur Fiat bæst í þennan hóp bílaframleiðenda og yrðu þeir bílar hvorki framleiddir né markaðssettir í Evrópu, heldur á nýmarkaðssvæðum eins og Indlandi og Kína. Fiat horfir til merkis sem það keypti árið 1990, Innocenti. Innocenti setti á markað ódýra bílinn Innocenti Mini árið 1974 sem hannaður var af Bertone og byggður á Morris Mini bílnum. Nýtt og ódýrt bílamerki Fiat væri í anda þess bíls.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent