Bílar

Vin Diesel á Dodge Charger Daytona í Fast And The Furious

Vin Diesel við hlið Charger bílsins
Vin Diesel við hlið Charger bílsins
Sjötta myndin kemur í maí.

Það verður ekki bara ofursprækur Nissan GT-R bíll sem fær hlutverk í næstu Fast And The Furious kvikmynd, sem verður sú sjötta í röðinni, heldur mun Van Diesel spretta um göturnar á Dodge Charger Daytona bíl í henni. Það er afar viðeigandi í ljósi fyrri mynda, því Vin Diesel hefur oft ekið á bandarískum kraftabílum í myndunum.

Þessi nýja mynd kemur til sýninga í maí á þessu ári og bíða verður sýninga á henni til að sjá hvort hann verður búinn nitro-búnaði til að auka afl hans eða hvaða aðrar breytingar verða gerðar á honum til að halda í við þá breyttu japönsku ofurbíla sem hann ávallt er að kljást við í Fast And The Furious myndunum.






×