Fyrsti dísilknúni fólksbíll GM í 27 ár vestanhafs 7. febrúar 2013 12:30
GM framleiddi þó 500.000 dísilfólksbíla fyrir aðra markaði. Chevrolet hefur í ár sölu á Cruze bíl sínum með dísilvél. Það þætti ekki merkilegt í Evrópu þar sem um helmingur framleiddra fólksbíla er með dísilvél, en þær hafa ekki átt uppá pallborðið í Bandaríkjunum. General Motors hefur ekki boðið dísilknúinn fólksbíl þar síðan Chevrolet Chevette var í boði árið 1986 með dísilvél. Dísilvélin í Cruze bílnum verður sú sama og notuð er í Evrópuútgáfum Opel Astra, Insignia og Zafira og er 2,0 lítra og 148 hestöfl. Í Bandaríkjunum er innbyggð andstaða við dísilknúna fólksbíla en framleiðendur geta vart lengur aðeins framleitt bensínknúna bíla því strangar reglur um minni mengun frá yfirvöldum þrýstir þeim nú til framleiðslu á dísilbílum. Evrópskir bílaframleiðendur sem selja bíla sína í Bandaríkjunum hafa hinsvegar boðið marga af sínum bílum dísilknúna og Volkswagen seldi í fyrra um 20% af Jetta bílum sínum í Bandaríkjunum með dísilvél og gerðirnar Passat, Golf, og Beetle eru líka í boði dísilknúnir. General Motors finnur fyrir örlítið auknum áhuga Bandaríkjamanna fyrir dísilbílum og er því í leiðinni að svara samkeppninni frá evrópsku framleiðendunum. Erfitt gæti reynst að selja þennan dísilknúna Cruze í því ljósi að hann má einnig fá með 1,4 lítra Eco bensínvél með túrbínu sem eyðir ekkert meira en sá dísilknúni en kostar 5.000 dollurum minna. Annar áhrifaþáttur liggur í verði á dísilolíu og bensíni, en gallonið af bensíni kostar 3,54 dollara en gallonið af dísilolíu 4,02 dollara. Almenn skoðun Bandaríkjamanna er sú að dísilbílar séu háværir og skítugir og erfitt gæti orðið að breyta hugarfari margra þeirra. Það skondna er hinsvegar að GM framleiddi í fyrra 500.000 fólksbíla með dísilvélum fyrir markaði í Evrópu, Asíu og S-Ameríku og af þeim 33.000 Cruze bíla. Í Evrópu eru 40% allra seldra Cruze bíla með dísilvél. GM gerir ekki ráð fyrir meira en 10% sölu Cruze með dísilvél í Bandaríkjunum.
Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent