Nýr Toyota Verso 8. febrúar 2013 08:45 Toyota Verso á fögrum vetrardegi
Er rúmmikill 7 sæta bíll með 32 útfærslur á sætisuppröðun. Ný útgáfa af 7 manna bílnum Toyota Verso er komin á markað og verður kynntur á morgun, laugardag hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, Selfossi og á Akureyri. Þar sem Verso er 7 sæta bíll hefur hann átt nokkrum vinsældum að fagna hjá fjölskyldufólki og einnig nýtist hann vel til ferðalaga vegna þess hve rúmmikill hann er. Margir möguleikar á nýtingu bílsins eru í raun aðalsmerki Verso og allt að 32 útfærslur eru t.d. mögulegar á sætauppröðun hans. Öll sætin í miðröðinni eru sjálfstæð og stillanleg og í aftursætinu má koma fyrir þremur barnabílstólum. Ýmist eru tvær eða þrjár sætaraðir í Verso. Tvær þeirra má leggja niður og þannig hefur bíllinn mikla flutningsgetu. Nýr Verso ber nýrri hönnunarstefnu Toyota vitni þar sem áhersla er lögð á sportlegri og djarfari línur. Verso er fáanlegur með glerþaki sem veitir birtu og léttleika inn í bílinn. Verso er ljúfur í akstri og fæst nú eins og aðrar nýjar gerðir af Toyota með Toyota Touch aksturstölvunni sem meðal annars inniheldur bakkmyndavél og Bluetooth tengingar fyrir síma og fleiri tæki. Einnig má bæta íslensku leiðsögukerfi við búnað bílsins. Verso er búinn ýmsum öryggiskerfum svo sem hemlalæsivörn (ABS), spólvörn (TRC) og stöðuleikastýringu (VSC). Verso er með fullt hús stiga, fimm stjörnur í öryggisprófi Euro NCAP. Verso fæst með 1.6l og 1.8l bensínvélum og 2.0l og 2.2l dísilvélum. Verð hans er frá 4.310.000 kr.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent