Tíska og hönnun

Fjölbreytileiki í fermingargreiðslum

Ellý Ármanns skrifar
"Nú fer að líða að fermingum 2013 og mjög spennandi tímar framundan hjá fermingarbörnum. Þetta er aldurinn sem þau vita hvað þau vilja og sem betur fer er enginn eins," segir Helena Hólm hárgreiðslumeistari og eigandi Hárgreiðslustofu Helenu Stubba-lubbar spurð út í fermingargreiðslurnar hjá stúlkum.

"Tískan í dag er mjög fjölbreytileg bæði í hári förðun og fatnaði hver og einn getur haft sinn stíl , krakkar í dag eru ekki hrædd við það. Hárið er yfirleitt haft í stíl við fötin ef fermingastúlkan er til dæmis í rómantískum kjól eða pönkuðu dressi."

"Strákarnir eru líka mjög sjálfstæðir bæði í fatavali og klippingu sem hefur breyst síðan ég byrjaði í hárgreiðslu fyrir 30 árum. Í gegnum minn feril hafa verið allt frá miklum greiðslum og niður í að varla mátti sjást að fermingarbarnið hafi farið í greiðslu. Nú eru hargreiðslustofur farnar að bóka tíma en gera þarf prufugreiðslu svo allt gangi upp á sjálfan fermingardaginn en hann byrjar vanalega mjög snemma," segir Helena.

www.stubbalubbar.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.