Tvíburasysturnar hæfileikaríku með frábæra jaðarpoppplötu Trausti Júlíusson skrifar 18. desember 2012 12:15 Pascal Pinon með Twosomeness.
Tónlist. Pascal Pinon. Twosomeness. Morr Music Hljómsveitin Pascal Pinon vakti mikla athygli með fyrstu plötunni sinni sem kom út fyrir tveimur árum. Þá voru stelpurnar í hljómsveitinni fjórar, 15 og 16 ára. Nú eru bara tvær þeirra eftir, tvíburasysturnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur, en Jófríður er jafnframt söngkona rafsveitarinnar Samaris. Fyrsta plata Pascal Pinon var mjög ljúf og melódísk, orðið ungmeyjapopp kemur upp í hugann þegar maður hugsar um hana. Nýja platan, sem er gefin út af þýsku plötuútgáfunni Morr Music, er á svipuðum nótum en samt hefur hljóðheimurinn þróast mikið. Tónlistin er orðin mun dýpri og fjölbreyttari. Platan hefst á laginu Ekki vanmeta, en í því er nettur "lo-fi" taktur áberandi. Næsta lag byrjar á orgeltónum sem gefa því karakter ásamt rödduninni. Raddútsetningarnar eru reyndar mjög flottar á plötunni allri og teljast eitt af aðalsmerkjum Pascal Pinon. Í laginu Kertið mallar rykugur rafhljómur undir og í lokalaginu Rifrildi eru kassagítar og flauta aðalhljóðfærin, svo nokkur dæmi séu tekin. Platan er mjög heilsteypt. Lögin eru góð og textarnir skemmtilega hversdagslegir. Þeir eru á íslensku, ensku og sænsku. Þó að þær Jófríður og Ásthildur séu bara tvær eftir í hljómsveitinni er tónlistin á Twosomeness oft marglaga og greinilegt að þær systur hafa bætt í og nostrað við hvert lag. Það er svolítill "lo-fi" hljómur á plötunni sem kemur mjög vel út. Stundum minnir tónlistin á Seabear eða múm, en samt er þetta engin hermiplata; Pascal Pinon hefur alveg sinn hljóm. Það hefur örugglega sitt að segja um heildarútkomuna að það var Alex Somers sem stjórnaði upptökunum, en hann hefur áður unnið með Jónsa og Sigur Rós. Á heildina litið er Twosomeness afbragðsplata sem sýnir að þær Jófríður og Ásthildur eru komnar ótrúlega langt í tónlistinni þrátt fyrir ungan aldur. Það verður líka að teljast nokkuð vel af sér vikið að hafa gefið út tvær plötur, spilað bæði í Kína og Japan og vera komnar á samning hjá Morr aðeins 18 ára! Niðurstaða: Tvíburasysturnar hæfileikaríku úr Vesturbænum með frábæra jaðarpoppplötu. Tvíburasysturnar Jófríður og Ásthildur Ákadætur. Twosomeness er fjölbreyttara framhald af fyrstu plötunni. Pascal Pinon hefur alveg sinn hljóm. Fréttablaðið/HAG
Gagnrýni Mest lesið Einhleypan: Grænkeri sem hrífst af hugrekki Makamál Mamma mætti á frumsýningu Fjallsins Lífið Selur fantaflotta íbúð sem hann keypti af Birni Braga Lífið „Mögulega besti tengiltvinnbíl sem framleiddur hefur verið“ Lífið samstarf Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Saknar ekki fullrar innkeyrslu af glæsikerrum Lífið Berglind Festival, Hallgrímur Helga og Unnsteinn á sumarhryllingnum Lífið „Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa“ Lífið Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Tíska og hönnun Mætti dópaður í Kastljós og laug blákalt að alþjóð Lífið Fleiri fréttir Fleetwood Mac: Þegar eftirlíkingin verður betri en raunveruleikinn Ómerkilegir þættir um merkilega konu Litríkar umbúðir en lítið innihald Illa bruggaðar Guðaveigar Vínartónleika skorti léttleika: Dansararnir stálu senunni Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Nýársswing með handbremsu Getuleysi á stóra sviðinu Barist um arfinn í Borgó Sjá meira