Fótbolti

Mun meiri möguleikar heldur en síðast

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar fagna hér sigri á Úkraínu í umspilinu.
Stelpurnar fagna hér sigri á Úkraínu í umspilinu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í riðli með tveimur góðkunningjum þegar dregið var í gær í riðla í úrslitakeppni Evrópumótsins í Svíþjóð. Ísland er með Þýskalandi og Noregi í riðli annað stórmótið í röð, en þessar þrjár þjóðir voru líka saman í riðli á EM 2009.

Íslensku stelpurnar voru í riðli með Noregi í undankeppninni fyrir EM 2013 og mæta Norðmönnum líka í fyrsta leik sínum í úrslitakeppninni. Þjóðirnar mætast í Kalmar 11. júlí.

Ísland mætir síðan Þýskalandi í Växjö 14. júlí í öðrum leik sínum í keppninni og lokaleikur liðsins verður einnig í Växjö, þegar liðið spilar við Holland 17. júlí.

„Mér finnst allir riðlarnir vera svipað sterkir. Ég veit ekki hvort það hefði verið betra að vera í einhverjum öðrum riðli," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari landsliðsins.

„Þetta er rosalega spennandi verkefni, við hlökkum bara til og ég held að við eigum fullt af möguleikum í þessum riðli," sagði Sigurður Ragnar um riðilinn.

„Þýskaland verður náttúrulega mjög erfitt því það er hörkulið sem vinnur þessa keppni yfirleitt. Við eigum samt einhverja möguleika á móti Þjóðverjum og það er gaman að fá að mæta svona sterku liði," sagði Sigurður Ragnar um Evrópumeistara Þjóðverja, sem hafa farið heim með gull á síðustu fimm Evrópumótum.

„Við eigum fína möguleika á móti bæði Hollandi og Noregi. Við erum búin að spila við þessar þjóðir undanfarin ár og það hafa verið jafnir leikir. Við erum lið sem getur unnið þessi lið á góðum degi," sagði Sigurður Ragnar.

Íslenska liðið er nú að fara að keppa á sínu öðru stórmóti, en liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum á EM í Finnlandi 2009.

„Mér líður aðeins öðruvísi að fara inn í þetta mót en síðast. Þá var allt nýtt og við lærðum heilmikið á þeirri keppni. Núna finnst okkur liðið okkar sterkara en áður og við eigum mun meiri möguleika í þessum riðli heldur en síðast," sagði Sigurður Ragnar, sem fer nú í það að skipuleggja síðustu mánuðina fyrir mótið.

„Nú fer undirbúningurinn á fullt, við finnum okkur vináttuleiki og skipuleggjum næsta landsliðsár. Ég ætla að kalla saman stóran hóp milli jóla og nýárs með leikmönnum sem ég tel að eigi góða möguleika á því að komast í lokakeppnishópinn," sagði Sigurður Ragnar, sem vill spila fullt af vináttuleikjum fram að mótinu í júlí.

„Við vitum að við tökum þátt í Algarve-bikarnum og það verða fjórir leikir í mars. Við erum að skoða að spila heima í Kórnum í febrúar en það er ekki orðið ljóst á móti hverjum. Í júní eru þrjár dagsetningar þar sem er möguleiki á því að spila leiki og vonandi getum við spilað á þeim öllum," sagði Sigurður Ragnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×