Mat og tísku tvinnað saman 4. október 2012 00:01 Ágústa Margrét Arnardóttir var sjómaður í þrettán ár. Hún skipuleggur viðburðinn Fashion with Flavor sem fram fer á Grand hótel um helgina. Ágústa er á myndinni miðri.mynd/Þormar Vignir Gunnarsson
Ágústa Margrét Arnardóttir hönnuður stendur fyrir viðburðinum Fashion with Flavor sem fram fer á Grand hóteli um helgina. Hugmyndin að baki viðburðinum er að sýna fullnýtingu íslenskra hráefna á einstakan hátt. „Ég fékk hugmyndina fyrst í janúar í fyrra og ákvað að hrinda henni strax í framkvæmd. Fyrstu sýningarnar fóru fram á Hornafirði, Reykholti og í Reykjavík," útskýrir Ágústa Margrét Arnardóttir, skipuleggjandi Fashion with Flavor. Á viðburðinum er tísku, mat og tónlist tvinnað saman á nýstárlegan máta. Ágústa Margrét er jafnframt eigandi og aðalhönnuður hönnunarmerkisins Arfleifðar á Djúpavogi og vinnur einungis með íslenskar afurðir á borð við roð, leður, horn og fjaðrir. „Ég var sjómaður í þrettán ár og allir í kringum mig eru veiðimenn. Ég hef því óbilandi áhuga á öllu sem tengist nýtingu hráefnisins og hef kynnt mér mjög vel vel hvaðan allt hráefnið sem ég nota kemur og hvernig það er veitt. Ég nota til dæmis engin dýr sem eru alin í búrum," segir Ágústa og bætir við: „Ein starfskonan í Arfleifð er bóndakona og hún mætti of seint til vinnu í dag vegna kindar sem fótbrotnaði. Þetta er því mjög sveitalegur tískubissness." Á viðburðinum munu fyrirsætur bera fram rétti eftir matreiðslumeistarann Hinrik Carl Ellertsson, klæddar fatnaði úr hreindýra- og lambaleðri eða roði. Greta Salóme sér um undirleik og á tónlistin að ýta enn frekar undir matarupplifun gestanna. Aðspurð segist Ágústa Margrét ekki óttast að sullað verði á flíkurnar. „Ég treysti fyrirsætunum fullkomlega. Í fyrra skvettist reyndar fullur bakki af bláberjalíkjör yfir eina sem var klædd í hvítt leðurpils, en það var hægt að skola litinn úr án vandræða. Þetta er algjört undraefni." Aðspurð segist hún vilja gera Fashion with Flavor að árlegum viðburði enda hafi kvöldin verið vel sótt og vakið athygli bæði hér heima og erlendis. „Ég á eftir að vinna með öllum þeim hönnuðum sem vinna með ull þannig ég vil að sjálfsögðu halda áfram með þetta. Helst að eilífu," segir hún og hlær. Miðaverð er 9.900 krónur og innifalið í því verði er fordrykkur og sex rétta matseðill. sara@frettabladid.is
Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Fleiri fréttir Marteinn Högni nýr framkvæmdastjóri Húrra „Núna þori ég miklu meira“ „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira