Æsandi draumur með hápunkti Sigríður Dögg Arnardóttir skrifar 24. ágúst 2012 16:00 Bókin Fantasíur inniheldur 51 fantasíu frá íslenskum konum.
Mikið ofsalega og innilega fagna ég aukinni umræðu um jákvæða upplifun af kynlífi og frelsun kynverunnar. Bókin Fantasíur inniheldur 51 fantasíu frá íslenskum konum. Fantasíurnar eru nafnlausar og bæði langar og stuttar; sögur, ljóð og lýsingar. Að mér vitandi hefur slíkt rit ekki verið gefið út hér á landi áður og því ber að fagna þessu. Sögurnar eru ólíkar og innihalda kynlíf með báðum kynjum og jafnvel verum sem ekki eru af þessum heimi. Ég fagna fjölbreytileika þeirra og klappa fyrir kynsystrum mínum, ég vissi að þið ættuð þetta til. Rauði þráður sagnanna rímar við það sem erlendar rannsóknir hafa komist að um fantasíur kvenna í vestrænum heimi; konur láta sig dreyma um að vera fullnægðar, upplifa kynlíf með öðrum konum, nokkrum aðilum af báðum kynjum og eldheita ástríðu þar sem þær gefa sig á vald þess sem fullnægir. Fantasíur eiga ekki endilega neitt skylt við raunveruleikann og ekki langar alla að uppfylla fantasíuna sína heldur er hún líkt og æsandi draumur sem hægt er að framkalla að vild. Það er mikilvægt að muna það við lestur þeirra. Í fantasíu ert þú leikstýra í ímynduðum kynferðislegum heimi og gerir nákvæmlega það sem þér sýnist. Flestar enda fantasíurnar í flóðbylgju fullnægingar enda oft talinn hápunktur kynlífs og unaðurinn er ekki flæktur með höfuðverkjum hversdagsins. Sumar sögurnar kitla og aðrar ekki, ætli það fari ekki eftir smekk hvers og eins. Kynlífsatriði sumra sagna þóttu mér of flókin og ég náði ekki að fylgja þeim eftir. Sögurnar eru þó vel skrifaðar, þægilegar til lestrar og uppsetning aðgengileg. Karlmennirnir eru sterklega byggðir, ákveðnir og annaðhvort ókunnugir, ástmenn eða menn í valdastöðu. Konurnar eru mjúkar, fallegar og nautnafullar og snerting sem byrjar sakleysislega leiðir sögupersónuna á óvæntar slóðir. Þá hefði verið gaman að sjá ögn meiri flóru í frásögnum, eins og þar sem konan stjórnar kynlífssenunni eða sögupersónurnar eru aðrar en staðalímyndir kynjanna. Sögusviðið er ýmist ofur rómantískt, framandi eða hversdagslegt. Tilfinningar og þrár endurspeglast í hraða og ákafa ástaratlotanna. Það getur nefnilega falist mikil spennulosun í því að afsala sér stjórnartaumunum. Íslenska konan er sjálfstæð og sterk kynvera og hún getur leyft sér að gefa sig á vald lostans og njóta. Það að lesa um fantasíur annarra er eins og að fá að gægjast í dagbók sem var kyrfilega læst. Þetta er svo forboðið og svo persónulegt að það er ekki annað hægt en að sogast inn í þennan lostafulla heim sem hver og ein frásögn skapar. Höfundunum þykir vænt um fantasíuna sína og hafa nostrað við hana. Þær sem ekki eru jafn ítarlegar gefa lesandanum færi á að útfæra hana nánar og gera að sinni. Þannig mætti nýta bókina sem leiðarvísi að kynlífi, þar sem í henni má finna ítarlegar lýsingar á kynlífsathöfnum, en hún er einnig kjörin upphitun fyrir ástaratlotin. Þið gætuð jafnvel skipst á að lesa sögur upphátt fyrir hvort annað. Fínt fyrsta skref í að opna umræðu um kynferðisleg málefni og klæmast smá saman.
Mest lesið „En áttu ekki dóttur?“ Lífið „Það er ekkert sem læknar þetta alveg“ Lífið Stjörnulífið: Tatiana og Ragnar í kastala í Frakklandi Lífið Ung, upprennandi og sjóðheit stjarna á lausu Lífið Verður aðalnúmer hálfleikssýningar Ofurskálarinnar Lífið Stjörnufans og forsetar á Rauðu myllunni Lífið Hneig niður í miðju lagi Tónlist Egill og Thelma eiga von á sínu öðru barni Lífið Boðaði vinkonurnar í bústað eftir að hafa upplifað Tinder á sterum Lífið Gjaldþrot Play setur RIFF úr skorðum: „Þetta kemur á versta tíma“ Lífið Fleiri fréttir Þeir fátæku borga brúsann Auður í Bæjarbíói: Frá slaufun í standandi fagnaðarlæti Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Er Lína Langsokkur woke? Kórtónleikar: Heilög naumhyggja eða heilalaust suð Barnaefni fyrir fullorðna Balta bregst bogalistin Þú heyrðir rétt: klassík getur verið skemmtileg Smashing Pumpkins pumpuðu upp stemningu – en listin varð undir hávaðanum Kynferðisleg gremja, sænskur senuþjófur og náttúruklám Ræðst framtíð grínmyndarinnar hér? Aumkunarverð endurvinnsla og ferskt framhald Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Sjá meira