Freistingum pólitíkusa fækkað Ólafur Þ. Stephensen skrifar 3. júlí 2012 06:00 Uppbyggingu þorskstofnsins á síðustu árum og sterka stöðu hans nú má ekki sízt þakka aflareglunni, sem fyrst var tekin upp árið 1995 og er í sinni síðustu útgáfu nokkurn veginn á þá leið að ekki skuli veiða meira en fimmtung af þorski eldri en fjögurra ára, að því gefnu að hrygningarstofninn haldist í 220.000 tonnum eða yfir. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar spáði því þegar kynntar voru tillögur stofnunarinnar um að auka þorskaflann upp í 177.000 tonn á næsta fiskveiðiári að heildarkvóti í þorski gæti farið upp í allt að 250.000 tonnum árið 2016. Það yrði væn búbót fyrir þjóðarbúið. Undanfarin ár hafa sjávarútvegsráðherrar staðizt þrýsting frá hagsmunaaðilum um að auka þorskkvótann umfram aflaregluna. Það er rétt og ábyrg afstaða, sem er byrjuð að skila árangri og mun gera það áfram til framtíðar. Hins vegar hafa ráðherrarnir notað aðra stofna sem skiptimynt og leyft veiði umfram ráðgjöf Hafró til að sætta hagsmunaaðila í sjávarútveginum við aðhaldið í þorskveiðum. Sérstaklega hafa ýsa og ufsi farið illa út úr þessum hrossakaupum. Menn hafa væntanlega hugsað sem svo að þar væru minni hagsmunir í húfi en í þorskinum, færi svo að þessir stofnar yrðu ofveiddir. Það blasti út af fyrir sig við að þessu væri ekki hægt að halda áfram til langframa; það myndi koma niður á minni nytjastofnum sem þó eru ekki síður mikilvægir en þorskurinn þegar á heildina er litið. Ástandið á ýsustofninum er nú orðið mjög alvarlegt og Hafró útilokar ekki að setja þurfi algjört veiðibann á ýsu. Stofnunin hefur nú lagt fram tillögur um nýtingarstefnu og aflareglu fyrir ýsu, eins og fjallað var um í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag. Reglan sem er lögð til er með öðrum hætti en í þorskinum; Hafró vill láta veiða 40% af ýsu sem er 45 sentímetrar og stærri. Þessa reglu segir Jóhann Sigurjónsson „standast allar ýtrustu kröfur um sjálfbærni og varúðarsjónarmið. Eins að hún gefi hámarksafrakstur til langs tíma litið." Í undirbúningi er sömuleiðis aflaregla fyrir ufsann. Hafró mælir með sams konar reglu og fyrir þorskinn til að ná hámarksafrakstri úr stofninum til lengri tíma litið. Það er jákvæð þróun að setja aflareglur fyrir sem flesta af nytjastofnum sjávar við Ísland. Þær þarf að sjálfsögðu að ræða á sem breiðustum grundvelli, þannig að bæði stjórnvöld og þeir sem hafa hagsmuni af því að nytja sjávarauðlindina hafi sem beztan skilning á gildi þeirra og sæmileg sátt ríki um að beita þeim. Kjarni málsins er að nýtingarstefna og aflareglur fyrir einstaka fiskistofna draga úr freistingum stjórnmálamanna að hunza ráðgjöf vísindamanna og leyfa of mikinn afla til að ná skammtímamarkmiðum. Við þurfum ekki að horfa langt út fyrir landsteinana til að sjá skelfilegar afleiðingar þess að pólitíkusarnir geta ekki staðizt þrýsting hagsmunaaðila. Hér á landi eiga menn orðið að vita betur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun