„Hann kom í heimsókn í sýningarherbergið okkar hérna í París," segir farahönnuðurinn Mundi sem fékk hinn fræga gönguþjálfara og fyrirsætu Miss J. Alexander í heimsókn í vikunni.
Miss J. Alexander er litríkur karakter sem skaust fram í sviðljósið sem hægri hönd fyrirsætunnar Tyru Banks í raunveruleikaþáttunum America"s Next Top Model. Þar var hann þekktur fyrir að koma fram í skemmtilegum fatasamsetninum og jafnvel klæðast dragi. Miss J sérhæfir sig í að kenna fyrirsætum að ganga tískupallinn enda fyrrum fyrirsæta sjálfur. Hann er búsettur í París en þar fer nú fram herrafatatískuvika fyrir sumarið 2013.
Mundi er með svokallað „showroom" eða sýningarherbergi í París í þeim tilgangi að sýna fatalínu sína fyrir gesti og gangandi, sem gjarna eru innkaupafólk, ritstjórar tískutímarita og annað áhugafólk innan tískuheimsins. Þangað kom Miss J og sló á létta strengi með Munda.
„Við spjölluðum saman og hann skoðaði og mátaði hjá okkur. Að lokum gaf ég honum bol áður en við kvöddumst," segir Mundi, sem er að ferð og flugi um heiminn með fatalínu sína í sumar.
Auk þess að vera í París verður Mundi ásamt meðal annars hönnuðum Eygló, Hlín Reykdal og Hringu á tískuvikunni í Berlín sem hefst í næstu viku. -áp
Miss J. hrifinn af Munda
