Syngja lag Jackson og Mercury 1. mars 2012 17:30
Friðrik Ómar og Matthías Matthíasson bregða sér í hlutverk söngvaranna sálugu Michaels Jackson og Freddies Mercury í nýútgefnu lagi. „Matti er með það rosalega háa rödd og hann tók Freddie án mottunnar," segir Friðrik Ómar um samstarf þeirra en lagið heitir There Must Be More to Life Than This. Mercury söng lagið einsamall á sínum tíma en eftirlifandi meðlimir Queen ætla síðar á árinu að senda frá sér áður óútgefna hljóðritun af laginu sem hann söng með Michael Jackson. Friðriki Ómari og Matthíasi tókst að vera á undan þeim því þeirra útgáfa er þegar komin í útvarpsspilun. „Þessu var stungið að mér fyrir Freddie Mercury-tónleikana í fyrra af Rúnari Róberts á Bylgjunni sem er mikill Queen-aðdáandi. Við ákváðum að taka þetta saman við Matti og þetta var skemmtilegt augnablik á tónleikunum," segir Friðrik Ómar. Þeir sungu á fimm tónleikum til heiðurs Mercury í fyrra og ætla að endurtaka leikinn í Eldborg í Hörpu 18. apríl ásamt Eiríki Haukssyni, Eyþóri Inga, Magna og Huldu Björk Garðarsdóttur. Miðasala hefst kl. 12 í dag. „Það verða þessir einu tónleikar og svo erum við búin að fá fyrirspurnir frá Færeyjum. Svo langar okkur líka að fara með þetta aftur norður á Akureyri." - fb
Tónlist Mest lesið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Vinsælustu sýningu leikhússins frestað vegna óvæntra meiðsla Lífið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Giftu sig eftir sex mánaða bakpokaferðalag Lífið Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Bíó og sjónvarp Fimm hlutu bókmenntaverðlaun kvenna og kvára Lífið Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Fleiri fréttir Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira